Trópismi
Jæja, núna er Forski búin með líffræðiverkefnið í feminískum bókmenntarannsóknum og er núna að fara að snúa sér að því næsta. En það er um marxíska greiningu á svarthvítri ljósmynd. Það ætti nú ekki að vera svo mikið vandamál vona ég.
Annars er svosem ekkert að frétta. Nema ég fékk morðhótun frá Batman sem segir að ef ég láti ekki Súperman í friði í framtíðinni, þá sendi hann Spiderman á eftir mér. En eins og allir vita, þá þolir Forski ekki köngulær. Það sást líka til hans Zorglúbbs greyið á ER í gær en þar var hann að reyna láta meika yfir töskufarið á andlitinu á sér. Zorglúbb er víst að íhuga að fá nálgunarbann á Forska fyrir vikið. Ég skil nú bara ekkert í þessu. Ég frétti líka að Grumpa er farin að stalka hann Gísla Martein og sitji nú inni í runna fyrir utan húsið hans og skrásetur hverja hreyfingu. Ég held að Gísli karlinn sé líka að íhuga að fá nálgunarbann.
Móðir Jörð er víst rúmliggjandi eftir gleði helgarinnar og segist ekki vilja koma framúr aftur því að heimurinn er svo grimmur og ægilegur staður. Hún bara trúir ekki ofbeldinu sem hún varð vitni af. Hver er svona grimmur að berja einhvern með handtösku. Nei, nú er sko nóg komið sagði Móðir Jörð rétt áður en það leið yfir hana af hneykslun. Tensai sat víst bara hjá allan tímann og var hin rólegasta á meðan blóðugt ofbeldið gekk yfir og brosti ofan í glundrið sitt. Þvílíkt anarkí og glunduroði, ég segi nú bara ekki annað!! Svei mér þá.

8 Comments:
At November 08, 2005 ,
Anonymous said...
Flokkast það undir að stalka einhvern (segjum t.d Gísla Martein) ef maður plantar sér fyrir utan húsið hans með gettóblaster og spila lagið "Loser" á rípít?
Annars hringdi Klark Cent í mig í dag til að athuga hvort það væri óhætt að koma út úr símaklefanum. Hann gengur nú um með gefinef og gerfiskegg og dökk sólgleraugu ef Forski yrði á vegi hans
At November 08, 2005 ,
Anonymous said...
Já móðir jörð er enn að jafna sig eftir að hafa upplifað spillingu stórborgarinnar. Þetta var ekki svona í gamla dag.. ó nei. Þorrablót er það villtasta sem mín jarðbundna sál þolir (þá eftir nokkur brennivínsstaup)
At November 09, 2005 ,
Anonymous said...
Þorrablót! Já já, þau eru nú langt frá því að vera eitthvað næs. Heilu lopapeysurnar eru jafnvel raktar upp og fólk gefur hvort öðru auga með því að stinga sviðahausa-augum ofaní vasana hjá hvort öðru og étur viðbjóðs hákarl og annað sveitajukk og verður svo blindfullt og rúllar ofaní fjöru og drukknar jafnvel. Má ég þá frekar biðja um draugfullan Forska í borginni að atast í Clark Kent og berja mann og annan með töskum og troða sér í stóla sem aðrir sitja í.
At November 09, 2005 ,
Anonymous said...
Og já Grumpa mín þetta flokkast sem afskaplega gróft einelti... en er samt allt í lagi ef þú ert bara að pína Gísla greyið því hann er svo mikil leiðindaskjóða
At November 09, 2005 ,
Anonymous said...
Hjálp!!! Mig dreymdi hráan sviðahaus í nótt!!!!
At November 09, 2005 ,
Anonymous said...
Hvað segirðu Tensai! Dreymdi þig sviðarhaus í nótt? Þér var nær að atast út í okkar fagra menningararf. The revenge of the Svith
At November 09, 2005 ,
Anonymous said...
Að dreyma sviðahaus er vísun í fyrri líf dreymandans, sem hefur verið að öllum líkindum verið bóndi í öll sín fyrra líf. Þetta þýðir víst að tensai san er bóndi í hjarta sínu og þess vegna þolir hún ekki Halldór Laxness, sem þoldi ekki bændur.
At November 09, 2005 ,
Anonymous said...
Já þaðan kemur ást Tensai San á öllum húsdýrum, sérstaklega hestum og ófrýnilegum hrútum. Undirmeðvitundin að leita aftur til fyrra lífs.
Ef marka má áreiðanlegar útlendar stjörnuspekisíður sem Monopoly les af miklum áhuga þá vorum við báðar húladansarar í strápilsum í okkar fyrri lífum sem lýsir sér í því að okkur er meinilla við kulda og snjó og meigum ekki sjá stráhatt án þess að taka nokkur létt húlaspor
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home