Súperman og Zorglúgg
Það var nú meiri ævintýrið sem Forski lenti í um helgina!! Haldiði ekki að hún hafi hitt hann Clark Kent og fallið svona í stafi af hrifningu. Ég prófaði til dæmis að henda mér í fangið á honum og þóttist hafa fallið í ómegin til að athuga hvort hann mundi nú ekki henda af sér spjörunum og í ljós myndi koma Súperman sjálfur. En ekkert þvílíkt gerðist, heldur lenti aumingja saklausi Forski í slagsmálum við hann Zorglúgg og þurfti ég að verja mig með öllum tiltækum ráðum, eins og með handtösku og regnhlíf. Forski náði yfirhöndinni í slagsmálunum í sömu mund og hún hélt ræðu um kennara og sex ára bekk (don´t ask!!). En þetta endaði allt saman í því að Súperman hljóp öskrandi í burtu og langaði ekkert að bjarga Forska, enda endaði hún eins og róni niðri á Grandrokk þangað til Madame liquer kom henni til bjargar og dröslaði henni heim rétt eftir miðnætti. Já, þannig fór nú sjóferð sú. Ég held svei mér þá að þetta hafi verið mitt fyrsta og seinasta Halloween partý. Mér þótti þetta nú eitthvað duló allt saman. Og ég sem drakk ekki nema hálfa rauðvín....
Annars er það að frétta að Forski situr sveittur yfir verkefni í feminískum bókmenntarannsóknum sem fjalla um trópisma og myndmál smæðarinnar. Þar er talað mikið um nagdýr og jafnvel amöbur. Þetta er eiginlega komið út í hálfgerða náttúrufræði hérna, en það er svona, með þessar aumingjans konur, sem er haldið niðri í svaðinu og ofan í eldhúsvaskinum alla daga. Ég er alveg að klára þetta verkefni og það verður framhald í næsta bloggi.

4 Comments:
At November 07, 2005 ,
Anonymous said...
Clark Kent var svo mikið um þennan áhuga sem Forski sýndi honum að hann hefur ekki komið út úr símaklefanum síðan á laugardaginn og Zorglúbb er með risastórt töskufar í andlitinu
At November 08, 2005 ,
Anonymous said...
Já og Forski er enn að undrast á því að hafa orðið svona þreytt á bara hálfri rauðvín!!
At November 08, 2005 ,
Anonymous said...
Ok að klára hálfa 750 ml flösku af rauðvíni, en hálfa 3ja lítra flösku er smá meira mál.
Er hægt að horfa á heiminn út frá flóknara samengi, þ.e. horfa á bókmenntir út frá trópisma, smæðinnig, amöbum og ??????????????? Hér í "Græðum meiri peninga" landi er bara talað um EBITDA, svo Forski, kannski ertu ekki í svo slæmum málum !!!!!!!!
At November 08, 2005 ,
Anonymous said...
síðasta innlegg var í boði Monopoly, sem getur ekki munað að skrifa ekki undir dulnefni
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home