Forskaren

Monday, November 21, 2005

Súkkulaði og testósterón!

Sko, hér á blogginu mínu á undan sá ég að það var orðin ansi lífleg umræða um súkkulaði og annan fögnuð. Og þarf ég bara að tjá mig aðeins um það núna. Sko, málið er þannig að kona verður að fá sitt súkkulaði, og sérstaklega kona eins og ég sem er chocaholic þá hef ég öll skilningsvitin virk þegar það kemur að því að þefa uppi súkkulaði. Það skiptir engu máli hvar Hammer reynir að fela súkkulaðið, við munum alltaf finna það....ha ha!
En jæja, núna ætlar forski enn einu sinni að leggja land undir fót og núna lét ég verða að því að kaupa mér flugmiða til Alabama og ætla ég að sitja í sveitinni um áramótin og gera....hm, væntanlega ekki neitt! :) Gott hjá mér. maður gerir hvort sem er aldrei neitt á gamlárskvöldi anyway þegar maður er orðin þetta gamall.
Ekki nennir maður lengur að hlaupa á eftir leigubílum á miðri nótt og til hvers? Til að hitta blindfulla (for)heimska ameríkana á pöbbunum sem halda að þeir séu flottastir og bestir útaf því að þeir voru í sérsveitinni í den eða útaf því að þeir eru slökkviliðsmenn í NYC! Ég held nú ekki. Þá sit ég nú frekar heima með kokksa og giska á hvað marga putta hún er með fyrir aftan bak. Jæja, best að fara að koma sér í skólann. það þýðir ekkert að sitja hér langt fram eftir öllu og blaðra um súkkulaði og karla.

5 Comments:

  • At November 21, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já það verður aldeilis gaman í áramótapartý í Alabama! Níræður tannlaus fiðluleikari spilar kántrílög, hamborgararnir verða de lux með extra miklu majonesi og Ku Kux Klan stendur fyrir skrúðgöngu og gefur börnunum hakakrossa

     
  • At November 21, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Grumpa alltaf jafn hrifin af könunum og hugljúf þegar kemur að börnunum.

     
  • At November 22, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Súkkulaði fyrir allar konur!! Heyr heyr!

     
  • At November 24, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Er kona ekki sönn kona ef konu þykir ekki súkkulaði ekki gott? Viljið þið kannski heyra fæðingarsöguna mína??????

     
  • At November 25, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Já, fékkst þú ekki súkkulaði á sængina?

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home