Forskaren

Wednesday, December 14, 2005

DooDoo fuglar og fleira

Jú, mikið rétt. Forski er svoleiðis grafin undir bókum,skruddum og pappírum. Ég er annars að vinna í seinasta verkefninu og er bara að taka mér smá pásu áður en ég dembi mér í lokakaflann. Annars er það nú ekki svo mikið að frétta héðan úr litlu lærikompunni. það er nú frekar að einhverjir aðrir geti sagt mér eitthvað skemmtilegt. Til dæmis hvernig var lúsíupartíið á laugardaginn seinasta? Var það ekki alveg brilliant bara? Eða þannig, það gleymdist náttúrulega bara algjörlega held ég og ekki veit ég hvar Grumpa var. Stakk hún kannski af heiman eða þurfti að leggja hana inn á tæknideild Landspítalans vegna þjóðfélags- og alheimshryggðar? Annars voru ég og Tensai að vinna húsverkin í dag (eins og okkur er einum lagið)og þar sem við lágum á hnjánum og skrúbbuðum og bónuðum og fægðum silfrið, þá fórum við að spjalla svona almennt um karlmanninn og við komumst eiginlega að þeirri niðurstöðu (eins og allar aðrar konur með einhverju viti í þessum heimi)að karlmenn eru hreinlega, 100% óþarfir í heiminum og þess vegna fæðast núna miklu fleiri konur inn í þennan heim. Þeir eru að deyja út eins og DooDoo fuglarnir forðum. Og af nákvæmlega sömu ástæðu. Dýrategundin er bara too .... stupid!!! Við hlógum að vonum mikið af þessu og þótti þetta algjörlega brilliant kenning. Sáuð þið ekki Ice Age? Þannig sé ég fyrir mér karlmanninn í dag..... Skondið eller hur?

3 Comments:

  • At December 14, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    En hver er þá meiri Dúdú fugl? Dúdú fuglarnir sjálfir eða þær sem elta Dúdúana út um allt?

     
  • At December 16, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Ekki gæti Monopoly lifað án karlmanna - um hverja ætti maður þá að tala illa um, eða hlæja að vitleysunni í, eða hneikslast á fíflalegum áhugamálum þeirra ???Versta er hvað þeir eru valdamiklir. Konur, við þurfum að koma öllum Karlpeningnum í heiminum í huggulega innivinnu eða næs útuvinnu þar sem karlmenn geti yfir leitt ekki gert neitt af sér.

     
  • At December 18, 2005 , Anonymous Anonymous said...

    Come on karlmenn eru flottir og kúl og jafnvel krúttalegri en Dódó fuglar... Hættiði þessu kvenremburugli... eru allir að lesa yfir sig eða skúra yfir sig???

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home