Skítalabbar og annar ósómi
þetta var nú alveg það besta af öllu svei mér þá! Maður sem gengur laus í Hafnarfirði og kúkar í skólatöskur hjá börnunum!!! Hvað er eiginlega að gerast í þessu þjóðfélagi? Maður má bara ekki standa upp frá skólabókunum lengur án þess að eiga á hættu að maður hafi eitthvað óhreint í pokahorninu þegar maður kemur aftur. Nei, nú er það sko svart. Ég ákvað að fara ekki í Þjóðarbókhlöðuna í dag af ótta við skítalabbann. hann gæti hafa hækkað sig upp um bekk og farið í æðri menntastofnanir til að dreifa skít og öðrum ófögnuði....Aumingja Hafnarfjörður, hvað ætli sé orðið um reppið í þessum aumingjans bæ?
annars að allt öðru, en það er ást á þjónustufulltrúum bankanna. Hafiði ekki lent í því að fara að metast um hversu góður þjónustufulltrúinn þinn er? Maður fer stundum að monta sig af konunni sem sér um fjármálin manns og gefur manni sjéns þegar maður hefur allt niður um sig.maður er eins og á leikvellinum hér í gamla daga. Þjónustufulltrúinn minn er sko betri en þinn, hún getur gert allt fyrir mig, skipt visareikningnum mínum og svo segir hún alltaf að allt sé í stakasta lagi....minn getur sko allt....Við Tensai lentum í slíkum deilum um daginn og þetta endaði með því að ég sagði að minn þjónustufulltrúi gæti sko sest ofan á hennar þjónustufulltrúa og yfirbugað hana léttilega í vísitölum og skuldabréfum....eða eitthvað í þá áttina.

9 Comments:
At December 05, 2005 ,
Anonymous said...
Og ég er sko viss um að þjónustufulltrúinn hans Forska er í því að kúka í bankabækurnar þegar hún heldur að engin sjái til og svo kemur æðislegi þjónustufulltrúinn minn og kemur upp um banka skítablesann...
At December 05, 2005 ,
Anonymous said...
Minn kann sko aldeilis að skíta peningum handa mér HAAHAA...þinn getur það ekki. Þetta er örugglega bara þjónustufulltrúinn þinn Tensai sem er að kúka í skólatöskurnar....
At December 05, 2005 ,
Anonymous said...
Minn týnir peninga af fína gullpeningatrénu og er ekkert að veiða eitthvað ógeðsklink upp úr jukk skítahrúgu úr gömlum hlandkoppi...
At December 06, 2005 ,
Anonymous said...
Þjónustufulltrúum er alveg skítsama um þessa venjulegu viðskiptavini sem ekkert eiga nema skuldir og standa aldrei í skilum á réttum tíma en þar sem þetta eru bestu viðskiptavinir bankanna (eru með endalaus lán á okurvöxtum og yfirdrátt og dráttarvexti ofan á allt saman en borga nú samt fyrir rest) þá brosa þeir Colgate brosinu sínu og segja að allt sé í fína lagi og bíða eftir jólabónusinum sínum sem er borgaður af þjónustugjöldunum
At December 06, 2005 ,
Anonymous said...
Hvar er nú jólaskapið hjá Grumpu? Ég trúi þessu nú ekki upp á þjónusutufulltrúann minn. hún er alltaf svo góð við mig.....Heitir Von Grumpenhofen kannski Kafka í eftirnafni? Ég bara spyr.
At December 07, 2005 ,
Anonymous said...
Hvernig mynduð þið túlka það ef fyrsti þjónustufulltrúinn þinn hættir starfi ÁN þess að láta þig vita, sá næsti er ekki með beinan síma, sá þriðji eignaðist tvíbura daginn eftir að hún fékk mig í viðskipti og nú er staðan þannig að Bankinn minn segir að ég sé á biðlista eftir þjónustufulltrúa? Græðir bankinn kannski minna á mínum viðskiptum heldur en ég?
At December 08, 2005 ,
Anonymous said...
Ég held að það sé alveg ljóst að Monopoly skuldar ekki nóg og er ekki með nógu mikinn yfirdrátt, er með færri en fimm skuldabréf og fjóra víxla og borgar reikningana sína á réttum tíma eins og eitthvað gamalmenni og borgar því enga dráttarvexti. Nei, Monopoly er lélegur viðskiptavinur!
At December 13, 2005 ,
Anonymous said...
Er Forskarinn farin að hlaupa um á ströndinni aftur - eða er Forkarinn bara í Próftörn Dauðans?
At December 14, 2005 ,
Anonymous said...
Já hvar er Forski, haldin föngum að skítóðum þjónustufulltrúa eða er Þjóðarbókhlaðan búin að gleypa hana?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home