Snjór og meiri ósómi

Hver fann eiginlega upp snjóinn? Ég bara spyr? Um helgina var sko ekkert grín að vera að vinna i úthverfi borgarinnar og þurfa í þokkabót að komast þangað með almenningsvagni! Ég missti af öllum bílunum því að ég held að allir þessi bílstjórar hafa örugglega bara ákveðið að vera heima hjá sér og drekka kakó og lesa teiknimyndasögur, svei mér þá. Ég endaði semsagt í leigubíl um morguninn. En ekki nóg með það, heldur eru þeir sko alls ekki að hafa fyrir því að laga seinkanirnar sem verða yfir daginn, heldur finnst þeim bara allt í lagi að koma á klukkustunda fresti fyrst það er svona ógurlega mikill snjór í henni Reykjavík. Forski var orðin svo pirruð á þessu leigubíla og strætó standi (enda að missa af rútunni til Eyrarbakka) og haldiði bara ekki að mín hafi endað í hörkubardaga um einn sjaldséðan leigubíl. O nei, Forski ætlaði sko ekki að láta þetta eftir gömlu konunni sem haltraði að leigubílnum og sagði að hún hefði nú pantað sér leigubíl í gærmorgun. Ég skallaði kerlu og sparkaði undan henni hækjunni og skutlaði mér svo inn í bílinn og æpti á skelfingu lostinn ökumanninn að drífa sig niður á Bsí undir eins!! Aumingja forski var búin að bíða í kuldanum í heilar 8 mínútur!!
En hvað er svo málið með Íslendinga? Sorry, en þó að ég er ekki mikið fyrir DV að þá veit ég nú ekki hvort rétt sé að búa til píslavott úr þessum manni og vitiði að hann framdi sjálfsmorð áður en DV kom út? Það er engin að spá í að maðurinn hefði kannski gert þetta hvort sem er. En við Íslendingar erum sko enn með heykvíslirnar í bílskúrnum og erum ekkert á því að hætta neitt að nota þær.
11 Comments:
At January 16, 2006 ,
Forskaren said...
Datt svona í hug að skella uppáhaldinu hennar Grumpu inn á síðuna. Hún er búin að vera að suða um mynd af goðinu síðan í Júlí
At January 16, 2006 ,
Anonymous said...
Við erum auðvitað öll syndlaus og erum meira en til í að kasta fyrsta steininum eða jafnvel heilu stuðlabergsklumpunum ef út í það er farið.
...og hvar er myndin af Whitney Huston??!!!
At January 16, 2006 ,
Anonymous said...
Oh, verður maður nú að hætta að lesa Forskaren ef svona myndir eiga að birtast á forsíðunni á hverjum degi - þetta er nú meira en Monopoly þolir. Viltu ekki bara bæta við Kenny D. og Richard Clydermann?
At January 17, 2006 ,
Anonymous said...
Hey, góð hugmynd, ég ætla að athuga hvort ég finni ekki flotta mynd af Kenny D... Grumpa væri nú ábyggilega hrifin af því. :)
At January 17, 2006 ,
Anonymous said...
Það er KENNY G. for crying out loud!!! Ekki fara með svona fleipur takk!
At January 17, 2006 ,
Anonymous said...
Ok, róleg róleg, ég skal birta mynd af einhverjum fögrum í staðnn..
At January 17, 2006 ,
Anonymous said...
Hvernig veit Grumpa svona mikið um Kenny G !!!!!!!!!!!!!!
At January 18, 2006 ,
Anonymous said...
Hm, við ættum kannski að taka þetta til athugunar? Ætli Grumpa sé að fela allt kenny G. safnið sitt inni í herberginu sínu?
At January 19, 2006 ,
Anonymous said...
Hver er Kenny G.??? Ég er ekki að þykjast vera fáfróð til að vera kúl; ég vil gjarna vita hver þetta er. Er hann Michael Bolton eða er þetta Kúrekasöngvari eða Balletdansari í þröngum sokkabuxum... eða kartöflubóndi frá Alabama???
At January 19, 2006 ,
Anonymous said...
Ég meinti er hann Michael Bolton eftirherma...
At January 20, 2006 ,
Anonymous said...
kenny G er með sítt hár og skalla. hann spilar undur rómatíska tónlist á saxafón í eighties stíl. og þar sem hvorki Grumpa né Monopoly eru rómatískar á háu stigi, þá er Kenny G. eins alvarlegt og skelfilegt fyrir þær eins og fyrir kristið fólk að sjá satan í messu!!!
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home