Forskaren

Saturday, January 07, 2006

Aftur heim til Islands

Sælir allir saman. Komin heim úr sveitinni Í Alabama. Þar erum við að tala um serious hillbillies sem er sko ekkert grín. Ef einhver hefur séð Forrest Gump, þá er hreimurinn sko ekkert ýktur. Þetta er allt saman for real! :) En ég skemmti mér mjög vel og fór á alls kyns ódýra subbustaði sem maður sér einungis í deep country, Sylacuaga, Alabama (og munið eftir hreimnum!)
Ef maður pantar kjúklingasalat fyrir einn á þessum stöðum, þá fær maður vikuskammt fyrir meðal stóra íslenska fjölskyldu. Ég veit ekki með Alabama búa, en það virðist sem þeir hafi aldrei heyrt um viðunandi portion size. Ég meina, það er ekki við öðru að búast þegar skammtarnir á veitingarstöðunum geta framfleytt heillri fjölskyldu í viku. Og svo eru þeir að kvarta undan yfirstærð. Ekki það að Alabama búar eru ábyggilega ekkert að kvarta. Ég held að þeim sé svona nokk sama hvernig þeir líta út. Enda er Wallmart aðal skemmtistaðurinn í Sylacauga. Einhleypar konur eins og ég sem vantar mann í Sylacauga (Hillbillie notabene), þá á maður víst að dressa sig upp í rósótta dressið með herðapúðunum og fara svo í Wallmart og bíða við bananastandinn. Þar hittast víst Sylacauga búar og chatta við hvorn annan um föðurlandsást og Jesú. Ég reyndi þetta einu sinni og stóð við bananastandinn dágóða stund. Og viti menn. það kom bara enginn. En það var kannski útaf því að ég fór ekki í Alabamagallan og var ekki með I Love Jesus húfuna. Gengur bara betur næst.
Annars var mjög gaman að vera í Ameríku eins og alltaf og ekki spillir þegar maður kemst í útsölur í Victoria Secret!
Tala við ykkur seinna. Vona að allir hafi notið áramótanna.

2 Comments:

  • At January 09, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Velkomin heim elsku Forski. Við erum mikið búin að sakna þín :-) Hlökkum líka til að snæða á öllu súkkulaðinu þínu líka :-)

     
  • At January 09, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Velkomin heim forski, hlakka til að fá að sjá alla rósóttu kjólana og flatbotna skóna ;D

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home