Kaffiboð í Hlíðunum
Nú er þetta nú aldeilis orðið flott. við kellurnar sem stunduðum eitt sinn rokkælupartý dauðans og harðneitðum dönnuðum drykkjum eins og víni, erum nú bara lagstar í marenstertuát og dannaðar súkkulaði trufflur. Ekki að ég verð nú að segja að ég fíla nú miklu frekar dönnuðu kaffiboðin og að sitja inni í flottri stofu hjá annað hvort Monopoly eða von Grumpenhofen og hlusta á nýjasta slúðrið um Jónínu Ben eða Jóhannes í Bónus, heldur en að sitja í rokkælupartýi langt fram eftir morgni í rifnu fötum í þokkabót eins og maður gerði hér í den. En kaffi/truffluboðið hjá Monopoly heppnaðist einstaklega vel og engin sofnaði í sófanum og engin lamdi annan með handtösku í framan (það hefur kannski eitthvað með það að gera að betri og vandaða kynið mætti einungis í boðið). Allir sátu glaðir og sögðu sögur úr sveitinni og af litlum fögrum börnum (Eða það halda mæður sem tala um blóðugar fylgjur og stífluð brjóst). Ég veit ekki betur en að Grumpa var næstum búin að taka fyrir eyrun af skelfingu þegar þriðja ælu/slef sagan fór af stað. Forski bara brosti og hugsaði um Pan eða Evrípídes á meðan og vonaði að þessum hryllingssögum færi nú að linna bráðum. Mini Monopoly hélt uppi skemmtiatriðum og var seinust í háttinn svei mér þá. Hún rak okkur allar í háttinn áður en hún tók á sig náðir. Geri aðrir betur en það. En kannski rokkælugenið ekki langt í burtu.
Annars er nú allt saman voðalega sloj svona í janúar. Maður horfir bara á Exfiles og Tensai san í Fréttunum. það er eiginlega ekkert annað um að vera.
Ég er reyndar byrjuð í kvikmyndasögu í skólanum er alveg að fíla það í tætlur. Núna verður sko sýndar myndir frá 1903 og uppúr. Geriði ykkur grein fyrir listrænu gildi þessara mynda? Kannski að Tensai vilji horfa með mér á nokkrar?
Annars er nú allt saman voðalega sloj svona í janúar. Maður horfir bara á Exfiles og Tensai san í Fréttunum. það er eiginlega ekkert annað um að vera.
Ég er reyndar byrjuð í kvikmyndasögu í skólanum er alveg að fíla það í tætlur. Núna verður sko sýndar myndir frá 1903 og uppúr. Geriði ykkur grein fyrir listrænu gildi þessara mynda? Kannski að Tensai vilji horfa með mér á nokkrar?
3 Comments:
At January 16, 2006 ,
Anonymous said...
Sko, allt þetta fæðingadæmi er bara subbulegt og grós og ég hef engan áhuga á að heyra eða sjá svoleiðis frekar en að sjá opið beinbrot eða heilaskuraðgerð þar sem þarf að saga hauskúpuna í sundur fyrst! Hafið þetta fyrir ykkur takk!!!
At January 16, 2006 ,
Anonymous said...
ég held nú að þú fílir þetta svona svolítið inn við beinið Grumpa...
At January 16, 2006 ,
Anonymous said...
Hvort er meira Grós - fæðingarsögur eða Splattermyndir?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home