Forskaren

Friday, January 20, 2006

Þýsk kvikmyndagerð og fleira

Sko, ég var að koma úr tíma í kvikmyndasögu og þar sá ég þýska expressiónístíska mynd frá þriðja áratugnum. Hún var nú bara alls ekki svo slæm. og ég hef alveg trú á því að ég eigi eftir að fá hana tensai San til að verða sammála mér....NOT! Annars var þetta bara mjög áhugavert og maður sér hvaðan allar hugmyndirnar í nútíma kvikmyndum eru komnar. þetta hefur í raun lítið breyst framá þennan dag, nema núna gengur þetta allt út á tæknibrellur en ekki söguþráð eða að vekja fólk til umhugsunar.
En vissuð þið líka að árið 1915 kom út mynd eftir aðal leikstjóra þeirra tíma og fjallaði hún um uppreisn svarta mannsins og hvernig hann yfirtekur Ameríku og aumingja hvíta fólkið. Og viti menn hver kemur til bjargar? Jú engir aðrir en Ku Klux Klan! Þessi mynd hafði víst gífurleg áhrif á amerískt samfélag í þá daga og væntanlega eimir enn eftir af áhrifum frá þessari mynd.
Jú og eitt annað! Vitiði að aumingja forski var plataður á leikjanet eitt kvöldið og haldiði ekki að ég sé hreinlega bara hooked á einum leik sem ég spila núna fram á rauða nótt í stað þess að lesa um Kvikmyndasögu og leiklistun á 20. öldinni. Skítt með bækurnar og allan fróðleik heimsins. Ég vil bara hanga í Gold Strike núna og vei þeim sem truflar mig. Annars hef ég alveg stjórn á þessu sko. Ég get sko alveg hætt þegar ég vil....Ég ætla bara að taka einn í viðbót.....

3 Comments:

  • At January 20, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Sko, Tensai San hefur nú ýmislegat á samviskunni en að heilaþvo aumingja Forska með einhverjum tölvuleikjaáróðri er ansi langt gengið! Nú verður sænsku doðröntunum um tedrykkjusiði viktoríutímans í 18. aldar bókmenntum hent í ruslið og spilað Counter Strike eða hvað þetta heitir fram á nætur.
    Tensai-1
    Forski-0

     
  • At January 20, 2006 , Blogger Kiddi rokk said...

    Já sko ég vissi að Forski mundi sjá ljósið og átta sig á því hvað það getur verið gaman að horfa á gamlar kvikmyndir. Nú sit ég kannski ekki alltaf einn og horfi heima hér eftir? Hver veit! Sem betur fer hafa Tensai og Forski ekki náð að koma mér í leikjadelluna. Guð minn góður! Hvenær ætti ég þá að hafa tíma að glápa?

     
  • At January 22, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Svartir yfirtaka USA! Já það er eitthvað sem menn voru hræddir við þá nú eru allir hræddir við menn með bakpoka sem eru haldnir sjálfseyðingarhvöt. Og í öllu þessu þá förum við að bera lotningu fyrir japanskri menningu og gleymum að það voru eiginlega þeir sem vildu heimsyfirráð í gamla daga ekki black-americans... já þetta er álíka skrítið og sú staðreynd að Forski sé dottin í tölvuleiki, en það hlaut að koma að þessu búandi með Tensai.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home