Menningarfræði
Nei Monopoly! Svo ég svara nú seinasta kommenti. Bloggið er sko ekki enn orðin deyjandi listgrein í hópnum. Málið er bara að núna er að hefjast hið ógnvænlega tímabil í lífi Forska þar sem hún gerir heiðarlega tilraun til að lesa yfir sig í eitt skitpið fyrir öll. Dæmi aðrir um hvort það hafi nú þegar tekist eða ekki....
en ég er semsagt búin að liggja gjörsamlega yfir menningarfræði seinustu vikurnar og er algjörlega heilluð að þessari fræðigrein. mér finnst þetta svo skemmtilegt að ég læri í svefni og vakna nánast upp á hverjum morgni með fullsmíðaða kenningu í hausnum. Allt sem ég heyri og skoða þessa dagana er greint útfrá menningarfræðilegum pælingum. Þetta er alveg hrikalega skemmtilegt viðfangsefni og mæli ég með því við alla að kaupa sér eina skemmtilega menningarfræðibók til að lesa sér til yndisauka í vorhlýjunni.
Annars veit ég ekki hvort allar kellingarnar í hópnum okkar eru búnar að frétta af snilldarhugmyndinni hennar Fröken likjör. En hún hljóðar þannig að framvegis verður alltaf hist annan hvern sunnudagsmorgun á kaffihúsi í borginni og farið yfir málin, hvort sem það eru karlamál, heimsmál eða mittismál. Mér finnst þetta brilliant hugmynd og ég ætla að vera fyrst á staðin á sunnudaginn kemur. En þá verður hópurinn vígður með kaffibolla og kleinu (svona kannski, ef mittismálið leyfir) klukkan 11 á kaffitár á Laugaveginum. Og mæti nú allir sem geta barnapíu valdið.

2 Comments:
At April 04, 2006 ,
Anonymous said...
Alveg brilliant hugmynd hjá Frú Líkjör!!! Ég læt mig sko hafa það að fara á fætur fyrir hádegi á sunnudegi fyrir svona uppákomur.
Og ekki að furða þó Forski hafi gaman af þessari blessuðu menningarfræði sem virðist ganga út á það að hanga í leikhúsi og horfa á bíómyndir étandi popp og kók. Skilgreina svo leikmyndina út frá menningarfræðilegum sjónarmiðum og grafa ofan í duldar meiningar leikmyndahönnuðarins sem, ef hann væri einfaldlega spurður, var hreinlega ekki að meina nokkurn skapaðan hlut heldur fannst þetta bara flott look.
At April 04, 2006 ,
Anonymous said...
Ó mæ god. Eru þið að ætlast til þess að maður eyði fríinu sínu í annað en börnin? Ó mæ GOD.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home