Sumarið komið enn á ný!
Bara svona aðeins að minna á mig og láta vita að ég er ekki dauð úr öllum æðum. Var að klára prófin um helgina og hef notið góða veðursins til hins ýtrasta. Er farin að vinna í Ikea allan daginn og núna finnst mér ég vera svoooo góður borgari þar sem ég mæti í vinnuna klukkan átta á morgnanna og vinn til 16.30. Rétt eins og góðborgara sæmir. Núna eru námsdagarnir með víni og spreðeríi á enda og ekki laust við að Forski sé svolítið leið yfir þessu. Núna er ekki hægt að sníkja út hina ýmislegu hluti og varning gegn því að maður sé í skóla. Núna halda allir að maður sé orðin ríkur bókmenntafræðingur og núna þarf maður að borga allt sjálfur.....crap!
En það er helst að frétta af mér að ég fór til Parísar um daginn og leist svona rosalega vel á borgina. Það eru nú margir í vinahópnum ekki alveg sammála mér og vilja meina að London hafi enn vinningin. En nei, segi ég. París er algjörlega yndisleg borg. Andrúmsloftið, menningin, listin, kaffihúsin, kaffið, maturinn, vínið, osturinn...þetta er endalaust yndislegt. ég varð algjörlega ástfangin af París!
Viva la France!!!

2 Comments:
At May 11, 2006 ,
Anonymous said...
HA, ha, ha. Að auglýsing um Coco Puffs gráður rati inn á vef Forska er bara fyndið.
París bara frábær. Á sko eftir að senda Mini Monopoly í sveit eitthvert haustið í 2 vikur og nota tímann til að skoða Monu Lisu og annað augnakonfekt. Eina borgin sem ég hef komið í sem býður upp á frábær kaffihús, þar sem salernisaðstaðan er hola í gólfinu ...........
At May 12, 2006 ,
Anonymous said...
Maður fyrirgefur nú Parísarbúum þennan subbuskap þegar þeir gefa manni svona gott að borða. En það er reyndar alveg rétt. Þeir eru greinilega ekki alveg enn vaxnir upp úr að fara bara á bakvið gardínu og gera númer tvö og spreyja svo ilmvatni yfir allt saman.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home