Golfarar og umferðarómenning
Fyrst ég er nú komin á bíl og er því farin að lifa í umferðarmenningunni aftur, Og þar sem ég er nú mikil menningarfræðikona þá get ég varla orða bundist yfir umferðarómenningu Íslendinga. Þetta er með ólíkindum hvernig fólk hefur enga stjórn á ökutækjunum. en það hefur náttúrulega engan tíma til að vera yfirhöfuð að stjórna þessum druslum. Ég meina, maður þarf nú að tala í símann, borða morgunmat, lesa moggann og hella upp á kaffi, og allt á meðan maður er að keyra niður ártúnsbrekkuna for crying out loud!! Hvað framúrakstur varðar, þá er ég alveg steinhissa hvað mörgum er eiginlega alveg sama um líf sitt. Fólk vill heldur deyja heldur en að vera einhver lúði sem hangir í rassinum á einhverjum trukki langleiðina upp að litlu kaffistofunni. Og þá komum við að Golfurunum. En það er sérstakt menningarfyrirbrigði á íslandi. Það eru litlir drengir sem eru komnir í mútur og búnir að vera með bílpróf í nákvæmlega 43 og hálfan dag. Þeir fara og kaupa sér Volkswagen Golf og þá helst glænýjan og siflurgráan eða svartan (því að það er so kúl maðr´r) og allt á 100% lánum að sjálfsögðu. Þetta eru oftast drengir sem vinna í vörumóttöku Eimskips á lyftara eða vinna í sjoppu uppi í Breiðholti. En svo fara þessir drengir út að keyra..... OH MY GOD! segi ég nú bara! Þeir hafa nákvæmlega enga stjórn á þessum tækjum. Þú getur séð panikið í aksturslaginu og það eru alltaf þessir sem að reyna að troða sér á ólíklegustum stöðum, fara fram úr 10 sek áður en akreinin tvöfaldast og aka þversum yfir alla miklubrautina til að komast inn á einhverja beygjuakrein. Það er næstum hægt að heyra angistarópin í þessum Drengjum þegar þeir reyna að finna bremsuna og fálma út í loftið til að reyna að skipta um gír. Oftar en ekki heyrir maður: ,,Maaaaammmmmmaaaaa!" út úr þessum bílum. Aumingja drengirnir. En svo gerist þetta nefnilega líka með fullorðna karlmenn sem stíga inn í þennan skrýtna smábíl sem olli þessum rosalega stóra misskilningi að Volkswagen Golf væri nú eiginlega bara rosa kúl bíll og svona hálfgerður sportbíll!! Íslendingar eru stórskrítin þjóð, ég get ekki sagt annað.
7 Comments:
At April 07, 2006 ,
Anonymous said...
Og ekki gleyma gömlum köllum með hatt sem keyra um á Volvo og keyra nákvæmlega eins (þ.m.t jafn hratt) og þeir gerðu þegar þeir byrjuðu að keyra bíl 1948. Það virkaði fínt þá og því engin ástæða til að breyta ökulaginu.
Það þarf því varla að taka fram að kallinn sem bakkaði óvart yfir konuna sína um daginn (og þá ekki eitthvað pent yfir fótinn á henni heldur hreinlega yfir hana miðja) og tók ekki eftir neinu, hann var á Volvo
At April 09, 2006 ,
Anonymous said...
Monopoly fór nú létt með það í gamla daga að reykja, drekka kók, syngja slagara, hnýta rokkslæðuna, rökræða við Grumpu, skoða strákana, skipta um kassettu, segja Flosa að hanga helst ekki út um gluggan um miðjan vetur OG Keyra. Það var í þá gömlu góðu daga. Nú er Monopoly bara ánægð að komast á milli staða áður en Mini Monopoly missir dudduna !!!
At April 10, 2006 ,
Anonymous said...
...og það m.a.s að keyra rauðu Löduna sem stundum hafði will of it´s owne
Og hvernig er þetta með Mini Monopoly og þessa snuddu?! Ég spái því að Monopoly verði enn að mana sig upp í að venja barnið af þessu apparati rétt fyrir fermingu! Sé fyrir mér fyrirsögn í DV árið 2020. "Móðir mín eyðilagði unglingsár mín. Leyfði mér að nota snuð fram yfir grunnskóla.Hef ekki enn eignast kærasta"
At April 12, 2006 ,
Anonymous said...
Æi, eitthvað verður blessað barnið að kvarta yfir.
At April 17, 2006 ,
Anonymous said...
Ég sat í bíl með Kokksa áðan og maður hefði nú haldið að Kokkurinn hefði eitthvað mýkst í takt við bumbustærðina, en það er fjarri lagi. Hún orgaði til hægri og vinstri á alla að snauta frá sér því hún væri sko að keyra þarna og vantaði pláss á götunni fyrir sig og sína hormónasprengdu bumbu (músí músí bumbu) Ef hún svo mikið sem sá Golf þá varð hún ultra sonic með það sama og sópaði litla golfaranum beinustu leið út í hraun. Enda alveg slóðin efitr kelluna frá Eyrarbakka til Reykjavíkur. Ég sat bara hnípin í framsætinu og reyndi að gera það besta úr málinu og smæla sem breiðast til allra á meðan Kokksi ruddist fram úr fólkinu, frussandi af æsingi.
At April 21, 2006 ,
Anonymous said...
Við skulum átta okkur á því að um leið og fólk eins og Forski og Kokksi fara að búa í rómantísku þorpi út á landi, þá opnast augum fyrir umferðarbullunum í höfuðborginni. Áður fyrr voru þær ... hvernig??? Kannski að meika sig og naglalakka á meðan þær tóku fram úr landsbyggðarpakkinu á Miklabrautinni sem ávallt sýnir skynsemi í umferðinni.
At April 24, 2006 ,
Anonymous said...
Utanbæjarfólk og skynsemi? Come on. Af hverju heldur fólk að gamla númerakerfi bílanna hafi verið lagt af? Til að fela DREIFARA í umferðinni, ekki það að við sem erum borinn og barnfædd í Höfuðborginni sjáum þessa Dreifara alltaf út.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home