Helgarfréttir
Þetta var nú svei mér þá helgin, Ekki að Forski var ljúf sem lamb eins og venjulega. En það virtust allir hafa brjálast bara um helgina. Einhver gaur fannst í Heiðmörk allur barin og kramin greyið, ráðist á ungling í Hafnarfirði (örugglega Reykvíkingar!!) og svo brjálaðist Eyþór Arnalds algjörlega og keyrði fullur útum allan bæ...ekki veit ég hvað kallinum lá eiginlega á, en ég held að Grumpa muni flissa svolítið yfir þessum óförum sjálfstæðismanna...
Annars er ég að reyna að hætta að eyða peningunum mínum í vitleysu og ætla að reyna að halda þessu loforði mínu í heilt ár. Þetta gengur ágætlega svona þegar maður gistir í sveitasælunni, en þar sem ég er nú á leiðinni aftur til Reykjavíkur, þá eiga nú freistingarnar að bíða manns á hverju götuhorni. En ég er handviss um að mér takist ágætlega upp þar sem ég á eftir að skrifa hlussuritgerð í sumar og hef því engan tíma til að hanga í búðum, kaffihúsum, veitingastöðum eða á öðrum menningarlegum stöðum borgarinnar.
Lifið heil.

2 Comments:
At May 17, 2006 ,
Anonymous said...
Æi, en leiðinlegt að ætla sér að eyða heilu ári án þessa að bruðla neitt, ef þú vilt þá getur Monopoly tekið að sér bruðlskammtinn fyrir Forskaren. Eftir að hafa haldið lögfræðingi á launaskrá í heilt ár, hefur Monopoly hið mesta yndi af því að eyða peningum í tóma vitleysu. Mundu bara Forski að feta ekki í fótspor einhvers heimspekings sem bjó upp í tré í heilt ár. Það gæti verið svolítið erfitt að halda hin reglulegu dönnuðu kaffiboð með Forskaran fastan upp í tré.
At May 17, 2006 ,
Anonymous said...
Það er göfug list að eyða penigum í allskyns óþarfa. Það er nefnilega óþarfinn sem veitir manni mestu ánægjuna. Hver þarf t.d nauðsynlega að slæpast í útlöndum þar sem maður skilur engann og ratar ekkert eða láta bláókunnugt fólk elda fyrir sig mat og vaska svo upp á eftir ef maður borgar fyrir það?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home