Aðeins meira um Eurovision
Ég ræð mér ekki af kæti yfir sigri Finnana. Flott hjá þeim að rúlla upp þessari annars skelfilegu væmnu keppni. EN hvað er eiginlega málið með ókurteisina í Grikkjum? Finnst þeim þeir geta hagað sér svona opinberlega útaf öllum leikritunum sem þeir sömdu fyrir 2500 árum? Mér er spurn. En þeir púuðu víst sem aldrei fyrr á saklausa keppendur. Og svo púuðu þeir líka þegar þeir fengu ekki stig fyrir þessa herfu sem stóð á sviðinu. Þetta er allt saman mjög fyndið. Og svona til að svara kommenti Grumpu, þá er ég voðalega fordómafull út í austurevrópubúa. En það er miklu betra að hafa vesturevrópskar glyðrur heldur en austurevrópskar....eða þannig. Ég trúi því nú heldur ekki upp á Grumpu að hún virkilega þoli ekki sjálfstæðisflokkinn og að hún fíli nú Gísla Martein svona inn við beinið og að henni finnst ábyggilega Keflavíkurbúar og Breiðholts(pakkið)fólkið hið ágætasta fólk. Það er ekkert nema umburðalyndin sem ræður ríkjum hér á bloggsíðunum þessa dagana.....Maður er nú bara að grínast svona í flestum tilfellum (nema þegar kemur að spænskum hermönnum í latexbuxum). Mér finnst Breiðholtið í rauninni vera voðalega fallegt og Keflavík ætti að verða höfuðborg Íslands, og þar ætti að byggja skyscrapers...eða þannig. Best að halda áfram að vinna. :)
8 Comments:
At May 22, 2006 ,
Anonymous said...
Hei
þú ert bara byrjuð að blogga á fullu og ég ekki tekið eftir neinu!!
Þetta voru snilldarúrslit í Júrókeppninni og Sigmar var miklu skemmtilegri en Gísli Marteinn... hver sem er gæti nú náð þeim árangri en hva... :)
At May 22, 2006 ,
Anonymous said...
Spáið í hvað hefði gerst ef við hefðum dressað Eika Hauks upp í Latex fyrir 20 árum síðan ;D
At May 22, 2006 ,
Anonymous said...
Við hefðum örugglega þurft að halda þessa keppni seinustu 20 árin ef við hefðum bara hugsað út í það að skella einu latex dressi utan um Eika hér forðum. Já og hvað á það að þýða hjá Móðir Jörð að fylgjast ekki með stórtíðindunum á blogginu?! :)
At May 23, 2006 ,
Anonymous said...
Sigmar fór bara á kostum sem kynnir, hann veit alla vega eitthvað um tónlist, annað en Gísli Marteinn, sem heldur að Iron Maiden sé bara gælunafn Margaret Thatcher, að Manowar sé nafn á skriðdreka og heldur að Lemmy sé þessi fjólublái í Stubbunum.
At May 26, 2006 ,
Anonymous said...
Gísli Martröð er bara eitt sorglegt dæmi af mörgum um karakterana sem eru í þessum volaða Sjálfstæðisflokki sem svo fólk virðist ætla að kjósa yfir sig í hrönnum. Ef að ég segi að fólk sé fífl þá lýsir það ekki fordómum í garð einhverra vitleysingja heldur eru þetta blákaldar staðreyndir
At May 26, 2006 ,
Anonymous said...
Gleymdi að kvitta. Ég er síður en svo að reyna að leyna skoðunum mínum á Flokknum þó það verði til þess að ég fái aldrei styrk úr neinum sjóði, verði aldrei boðið í opinberar veislur, geti alveg gleymt því að verða sendiherra, dómari, lögreglustjóri eða útvarpsstjóri og verði aldrei talin hæf til að fá úthlutað lóð á spottprís sem ég gæti svo selt 10 mín. seinna á fimmföldu verði
At July 19, 2006 ,
Anonymous said...
Nice! Where you get this guestbook? I want the same script.. Awesome content. thankyou.
»
At July 22, 2006 ,
Anonymous said...
Greets to the webmaster of this wonderful site. Keep working. Thank you.
»
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home