Forskaren

Thursday, June 15, 2006

Litli frændi og fleira

Núna er hann litli frændi kominn í heiminn og er aljgört krútt!! Hann lét hafa mikið fyrir sér og aumingja kokksi endaði í Reykjavík og í keisaraskurði. Þannig að frændi litli er voðalega sléttur og fínn og ánægður með lífið. Hann sýgur núna allt sem fyrir er eins og putta, brjóst, tunguna og loftið og svo er hann komin í pínulítil föt....hann er bara algjör dúlla!! Ég er meira að segja svo yfir mig hrifin að ég er sko alveg til í að heyra fæðingarsöguna hjá Kokksa aftur og aftur!! En svona svo það sé alveg á hreinu, þá kom stráksi í heiminn þ. 13. júní. :)
Annars er nú svolítið fyndið að frétta. Munið þið eftir því þegar Forski hljóp á ströndinni í fyrra með skrýtnum spænskum hermanni sem reyndist svo vera að ljúga um faðerni, kynferði, uppruna, nafn, aldur, skóstærð, augnlit og fatastærð? Það fór nú svosem ekkert fyrir þessu ævintýri eins og þið munið en Forski varð ekkert alltof glöð þegar hún komst að öllum sannleikanum. En núna er víst enn einn brandarinn búin að bætast við lygina sem kemur upp úr manninum. En hann þóttist hafa hætt í Eimskip þar sem hann vann við að skúra gólf og setja bréf í tætarann fyrir aðra, og fara í fína skrifstofustöðu í Amaeríku fyrir jólin. Hann sór og sárt við lagði að hann væri ekki að fara aftur til Trailertrash town til konunnar sinnar (sem var víst búin að grátbiðja hann á hnjánum að koma til sín aftur). En viti menn. Var hann ekki bara enn í Eimskip að fela sig litla greyið. Heima hjá kellu að drekka ákavíti í volgt kók á kvöldin....Svona getur þetta verið, en Forski hleypur núna bara ein á ströndinni og er sko miklu ánægðari með það!!!! Good ridance!!

3 Comments:

  • At June 15, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Ég mæli með því að Monopoly og Forskaren setjist nú niður og semji bók saman sem gæti fengið heitið "How not to meet a man". Þar sem bæði Monopoly og Forski hafa stundað úthafsveiðar af mikilli ákefð á erindið þeirra við alla heimsbyggðina, því fara þær í útrás með bókina, verða frægar um allan heim og fyrrverandi kærastar frá ýmsum heimshornum gráta það að hafa verið algjörir kúkalabbar

     
  • At June 15, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Hljómar eins og gott plan, I´m in!!
    Við getum haft kafla eins og: How to run on the beach and drown him while you´re doing it, eða how to run like the wind if he says he´s from any country that starts with an U, like U.K. or U.S.A.,

     
  • At June 16, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Þetta er bara farið að hljóma almenninlega hjá okkur!! :)
    Hvað með: How to humiliate a bastard in front of everyone!! Ten easy steps! Oh no sorry, He already did that himself....

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home