Kosningar og fleira
Jæja, þá eru kosningarnar búnar og svo virðist sem sjálfstæðismenn og framsókn ætli sér að stjórna öllu. Ég skil þetta ekki alveg, en hver er eiginlega svona ánægður með Halldór Ásgrímsson að hann kýs Framsókn? Ég bara spyr. Annars er ekki mikið um að vera nema ég er að breyta mataræðinu og hætta að hella upp í mig svona miklu kaffi og svona miklu magni af súkkulaði. Það er samt ekkert svo auðvelt skal ég segja ykkur. :) Ég er líka hætt að eyða eins og mofo og er núna farin að telja krónurnar svolítið. Það getur líka verið svolítið gaman að sjá krónurnar vaxa inni á reikningnum. Ekki að ég sé þær reyndar ekkert vaxa, þetta fer allt í skuldir og námslán. Enda er ekki ódýrt að lifa bara á konfekti og kampavíni í þrjú ár á meðan maður er í skóla.....
Er einhver með lausnina á því vandamáli að éta eins mikið gotterí og súkkulaði án þess að bæta á sig grömmumm?
Er einhver með lausnina á því vandamáli að éta eins mikið gotterí og súkkulaði án þess að bæta á sig grömmumm?
6 Comments:
At May 31, 2006 ,
Anonymous said...
Peningar eru til þess að eyða þeim í allt sem manni þykir skemmtilegt og gott, ekki til að geyma á bankabók engum til gagns. Maður gæti orðið undir valtara á morgun og hvað hefur maður þá upp úr því að hafa safnað öllum þessum peningum og neitað sér um gott kaffi og súkkulaði?!
At May 31, 2006 ,
Anonymous said...
Þú getur tekið upp franska siði, en franskar konur borða allt petite. Í staðinn fyrir að gúffa í sig heilu súkkulaðistykki, væri hægt að narta í einn bita af suðusúkkulaði. Í staðinn fyrir Amerískar stærðir af kökum má maula franska súkkulaðiköku í franskri stærð.
En það er eins og Grumpenhofen segir, lífið er til þess að lifa því lifandi.
At June 01, 2006 ,
Anonymous said...
Já kosningar eru algjör bömmer. Hér fyrir austan er útlitið svo að sjálfstæðismenn fara e.t.v. í stjórn, sem táknar að fyllibyttu við stýrið.... ég held að það sé gáfulegra að hugsa um eitthvað annað eins og hvort sé betra að hafa snúrustaurana fyrir framan hús eða aftan.
Heilsuátak er að virka fínt!
At June 01, 2006 ,
Anonymous said...
Já, maður getur svosem bara sest í sófann og étið gat á hjartað. Maður er kannski rosalega hamingjusamur á meðan á því stendur. Ég veit það ekki....hmm,
At June 01, 2006 ,
Anonymous said...
Það er marg sannað mál að súkkulaði veitir gleði og ánægju og er ekkert svo óhollt. Þá er ég að tala um SÚKKULAÐI en ekki þetta óæta smjörlíkis- og sykurklístur sem tíðkast að bjóða fólki upp á og kalla súkkulaði. Hér kemur svissnskt súkkulaði og belgískar trufflur sterkt inn auk þess maður er ekki hámandi í sig svoleiðis munaðarvöru yfir sjónvarpinu og skola því svo niður með volgu kóki. Maður fær sér lítið í einu með góðum kaffibolla en þeim mun oftar:)
At June 08, 2006 ,
Anonymous said...
Your are Excellent. And so is your site! Keep up the good work. Bookmarked.
»
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home