Stjórnarkreppa
Jæja, þá er allt komið í bál og brand í ríkisstjórninni og engin veit hver stýrir landinu þessa dagana. Halldór er hættur, Guðni er hættur við að hætta og Finnur ekki byrjaður....Mér virðist sem algjör upplausn ríkir í ríkistjórninni eins og er og það er ekki laust við að maður flissi örlítið með Samfylkingunni að óförum þessara manna (sumra allavega). Ég veit ekki hvort þið sáuð það en undur og stórmerki gerðist á blaðamannafundinum með Halldóri þegar hann sagði af sér. En hann sást brosa!! Og það oftar en einu sinni! Ætli þetta verði sett í öldina okkar?
annars er svo sem ekkert að frétta og því miður og ver. Það bólar ekkert á litla frænda sem ætlar sér að setjast að í Kokksa og er ekkert á leiðinni út. Enda líður honum örugglega bara alveg ágætlega þarna inni. Fær næringu í æð, góðan svefn, þarf ekkert að hafa fyrir lífinu... En honum verður víst ýtt út greyinu á sunnudagskvöldið ef ekkert gerist fyrir það.
Jú annars er það nú að frétta af Forska að ég er nú í óðaönn að laga til herbergiskytruna góðu í RVK og búin að mála baðherbergið, gluggana og lista og svona fleira. Þannig að ekki líður á löngu þar til Forski verður aftur komin í bæinn. Hlakkar til, en líka ekki. það er svo rosalega ljúft að vera í sveitinni.
Lifið heil!

2 Comments:
At June 09, 2006 ,
Anonymous said...
Skilaðu til Kokksa að betra sé fyrir hana að fara bara núna út að skokka, slá blettinn og/eða stunda brjálað kynlíf, bara allt til að koma krílinu af stað. Það er vont þegar þeim er ýtt svona út.
At June 15, 2006 ,
Anonymous said...
Ef Forski getur tekið sér frí eina kvöldstund frá því að dekorera og er ekki með höfuðverk og magakveisu eftir einhverja pesti sem gekk um helgina (hóst hóst) þá er alveg kominn tími á einn latte!
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home