Forskaren

Wednesday, June 21, 2006

B.A. og fleiri vangaveltur

Jæja, núna er Forski semsagt komin á fullt með að vinna í B.A. ritgerðinni og viti menn, haldiði ekki að hún fjalli um orðræðugreiningu á bók sem heitir Jarhead, en hún er um hermann sem fer í Persaflóastríðið. Þetta verkefni var svona agalega girnilegt því að það er svo mikið hægt að rýna ofan í menningu okkar Vesturlandabúa í leiðinni. Mjög áhugavert verkefni og kannski fæ ég einvher svör við því af hverju hermenn ljúga svona mikið, eru svona miklir lúserar og hafa einstakt lag á að láta allt og all hata sig....hmmm, læt ykkur vita niðurstöðurnar fljótt.
Annars er ég búin að koma mér voðalega vel fyrir í Reykjavíkinni aftur og búin að vinna sleitulaust að því að gera herbergið mitt voðalega fínt. Sat uppi í rúminu mínu í gær og horfði á sjónvarpið (sem er beint fyrir framan rúmið nota bene) en þar var ég í fyrsta sinn að sjá smá af einhverjum fáránlegum raunveruleikaþætti um konur sem eru að skipuleggja brúðkaupið sitt. Hvað er eiginlega að verða um okkur??? Hvernig dettur íslensku sjónvarpi í hug að bjóða íslenskum konum upp á þetta drasl? ER ætlunin að forheimska kvenþjóðina eins og gert var í Ameríku? Við erum ekki svona eins og þessar heimsku ljóskur þarna úti (það eru að sjálfsögðu undantekningar, eins og allir vita...) en þetta er bara orðið tú möts!! Og hananú! Annars hef ég ákveðið að lýsa eftir Grumpu. Mig er farið að gruna að hún hafi tekið gríninu um kúkableyjurnar ansi alvarlega og sé í alvörunni að hugsa um að gerast vampíra í Transilvaníu....Látið mig vita ef eitthvað fréttist, en seinast sást hún á kaffi parís kát og glöð með kaffi og eplatertu.

4 Comments:

  • At June 21, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Orðræðugreining - come one Forski ertu ekki að grínast? Er þetta sama kona og ég hef sungið með High Way to Hell oftar en ég kæri mig um að muna, rætt um hvað myndi gerast ef Súperman myndi birtast á göngustígnum og vakið páfagaukinn um miðja nótt með til að ath. hvort það myndi hafa sömu áhrif og á ugluna í Viggó viðutanbókunum?
    p.s. þegar þú ert búin að greina Jarhead, getur þú þá lánað mér hana?

     
  • At June 22, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Já, það er víst af sem áður var. Nú mundi ég ekki einu sinni muna á hvaða disk Higway to Hell er og ég mundi fara að greina súperman frá menningarlegu sjónarmiði og hvaða áhrif hann hefur haft á maskúlinisma í samfélaginu.....jú auðvitað máttu fá bókina lánaða. Hún er mjög áhugaverð. :)

     
  • At June 24, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Grumpa er sennilega bara kominn með karl, orðinn ólétt af tvíburum, búin að kaupa sér einbýlishús í Grafaholtinu, jappa og 2 hunda, og er á leiðinni á sólarströnd með tengdó og öllum frænkum nýja mannsins.

     
  • At June 25, 2006 , Anonymous Anonymous said...

    Her i Transylvaniu er bara voda fint. Her dettur engum i hug ad segja faedingasogur og kukableyjur eru ekki raeddar yfir morgunmatnum eins og eg hef grun um ad sumir geri. Her gegna lika bornin thvi sem theim er sagt og fa hvorki frekjukost ne thjast af athyglissiki. Theim er einfaldlega sagt ad tha komi Dracula fraendi og taki thau og biti thau a hals og thau komi aldrei heim aftur. Thetta virkar lika svona ljomandi vel

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home