Betra bak
Jæja, orðin betri í bakinu og byrjuð að pakka fyrir sveitaferðina ógurlegu sem hefst með pompi og prakt á fimmtudaginn kemur. Þá ætla allir sem vettlingi (eða trefli) geta valdið að skunda upp í sveit með vín, bikini, súkkulaði trufflur, osta og kex í töskunni og hafa það náðugt í kjarnholti yfir páskana. Ég ætla að njóta þess að fara í bikini settið sem hefur ekki verið dregið upp síðan í strandferðinni til Delaware hérna um árið, leggjast eða setjast öllu heldur í heita pottinn, drekka rauðvín og ræða við kjarnakonur um heimsins málefni. Ég hlakka mikið til og núna er Tensai greyið farin að hafa smá áhyggjur af of góðri mætingu. Það tóku allir svo rosalega vel í þessa hugmynd að hafa það gott í sveitinni að hún er ekkert viss um að hún komist einu sinni í heita pottinn og hvort hún fái nokkurn svefnfrið yfir höfuð þar sem æði margar kellingar ætla að mæta gallvaskar og stinga sér í þennan margfræga heita pott, fara úr brjóstarhöldurunum og drekka sig blindfulla og vera með læti.
Þetta verður allavega mikið fjör og skemmtilegt frí. ég er alveg viss um það. :)
Gleðilega páska!
Þetta verður allavega mikið fjör og skemmtilegt frí. ég er alveg viss um það. :)
Gleðilega páska!