Forskaren

Monday, April 02, 2007

Betra bak

Jæja, orðin betri í bakinu og byrjuð að pakka fyrir sveitaferðina ógurlegu sem hefst með pompi og prakt á fimmtudaginn kemur. Þá ætla allir sem vettlingi (eða trefli) geta valdið að skunda upp í sveit með vín, bikini, súkkulaði trufflur, osta og kex í töskunni og hafa það náðugt í kjarnholti yfir páskana. Ég ætla að njóta þess að fara í bikini settið sem hefur ekki verið dregið upp síðan í strandferðinni til Delaware hérna um árið, leggjast eða setjast öllu heldur í heita pottinn, drekka rauðvín og ræða við kjarnakonur um heimsins málefni. Ég hlakka mikið til og núna er Tensai greyið farin að hafa smá áhyggjur af of góðri mætingu. Það tóku allir svo rosalega vel í þessa hugmynd að hafa það gott í sveitinni að hún er ekkert viss um að hún komist einu sinni í heita pottinn og hvort hún fái nokkurn svefnfrið yfir höfuð þar sem æði margar kellingar ætla að mæta gallvaskar og stinga sér í þennan margfræga heita pott, fara úr brjóstarhöldurunum og drekka sig blindfulla og vera með læti.
Þetta verður allavega mikið fjör og skemmtilegt frí. ég er alveg viss um það. :)
Gleðilega páska!

4 Comments:

  • At April 03, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Verður ekki einhver með myndavél? >:D

     
  • At April 04, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Monopoly ætlar að skella sér í sveitina dagsstund með nesti og nýja skó. Mini Me verður sett í band og skellt út á hlað, meðan Monopoly spjallar við gesti og gangandi um álver, gráa herinn og grænu dúllurnar. Ætlar svo að renna í bæinn aftur fyrir kvöldmat, þorir ekki að standa andspænis 30 blindfullum kellingum án brjóstarhaldara mótmæla kapítaliskum hugsunum Monopoly. Satan Jarl og Gösli eiga líka einkarétt á því að æsa mannskapinn upp, ekki tekur maður það frá þeim.

     
  • At April 04, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Gözli hefur leigt bústaðinn við hliðina og þar ætla þeir Satan Jarl að fylgjast með öllu kjellingunum fara úr brjóstahöldurunum!!

     
  • At April 11, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Jæja, everyone!! Eftir MIKLA rokkhelgi þar sem Helshare kvartettinn lék á alls oddi á Granrokk ásamt séntílmönnunum í Zero Hour þá vil ég bara segja að þið misstuð af miklu!!

    Tók einhver svo myndir af ykkur brjóstahaldaralausum?

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home