Forskaren

Tuesday, March 20, 2007

Veik enn og aftur

Jæja, þá er ég enn einu sinni lögst í veikindi á þessu ári. Mér finnst þetta nú orðið svolítið dularfullt!! Ætli það sé verið að eitra fyrir mér? Nei, ætli það. Ég býst við að þetta sé nú bara svona standard flensufaraldur sem ég er að ná mér í. Annars finnst mér ég alltaf eiga einhvern veginn ekki að geta verið veik. Búin að hamast í ræktinni seinustu mánuðina og fæ ekkert annað en bakverk og flensu að launum. :)
En maður er víst ekki ósigrandi og maður reynir þá bara að lesa eins mikið og maður getur á meðan maður liggur upp í sófa.
Vona að þið bloggarar séuð ekki að detta í neitt óskemmtilegt.
Lifið heil.

4 Comments:

  • At March 20, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Farðu vel með þig Forski. Þú mannst að drekka heitt toddy, það er miklu betra að vera veikur aðeins í skál heldur en edrú. Hef þetta eftir frægum og virtum skurðlækni hér á landi.

     
  • At March 24, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Þú þarft bara að komast í heilnæmt sveitaloftið á Eyrarbakka og burt úr stórborgar skítamenguninni væna mín.

     
  • At March 24, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Fari þið nú að setja einhver komment inná Rutharblogg í mbl. svona nú .....

     
  • At March 28, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Ég sem sit bara uppi í sófa, les bjöð og borða súkkulaði kenni mér aldrai neins meins. Go figure!

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home