Forskaren

Thursday, February 15, 2007

My Real Age



Núna er ég búin að sitja í eina klukkustund við tölvugarminn til að fá úr því skorið hvort ég sé eldri eða yngri en minn eiginlegi aldur segir til um.
Farið á þessa síðu og tékkið á hvort þið eruð enn á táningsaldri eða á leiðinni inn á elliheimilið: http://www.realage.com/index.aspx
Ég nefni engin nöfn, en ég er nú ekki alveg viss um að allir bloggarar eigi eftir að fá sömu niðurstöður í Realage testinu....sumir eiga væntanlega eftir að fá lægra en aðrir....ég er til dæmis alveg viss um að Satan Jarl og Gözli séu ansi ungir í anda..
Ég er ekki búin að fá niðurstöðurnar sjálf(fæ þær formlega sendar í emaili eftir eina eða tvær klukkustundir), en eftir að ég sagði að ég væri ógift, barnlaus og byggi í friði og spekt, ein með sjálfri mér, þá rauk ég allt í einu úr 30 ára aldri upp í 37,7. Að lifa í ró og friði og í hamingjusömu sambandi við sjálfan sig er greinilega mikill áhættuþáttur í lífi manns. Ég segi nú bara, er ekki meiri hætta á að maður fái hjartaáfall, lungnasjúkdóm eða deyi fyrir aldur fram af einhverjum stresstengdum sjúkdómi ef maður er að standa í hjónabandi og að ala upp brjáluð börn? Ég bara spyr svona í sakleysi mínu? Er hætta á að manni leiðist svo mikið ef maður er einhleypur að maður drepist hreinlega úr leiðindum? Þetta heitir að eiga tíma fyrir sjálfan sig, njóta þess að vera til, upplifa allt sem maður ætlaði sér áður en maður deyr (fyrir aldur fram greinilega)og að láta drauma sína rætast!
Ekki misskilja mig samt, börn eru yndisleg og ég væri ekkert á móti því að eignast lítið kríli, og karlmenn eru víst yndislegir líka, það er víst því miður ekki hægt að lifa algjörlega án þeirra.... :). En maður þarf nú samt ekki að vera í meiri lífshættu ef maður velur að fara aðra leið. Er það nú ekki svolítið ýkt! Erum við ekki öll ólík og mismunandi. Allir velja sér sína leið og fara hana bara. ég held ekki að ég sé í neinni meiri lífshættu en aðrir þó að ég eigi ekki karlpening til að röfla í heima. Takiði annars þetta próf, það er mjög áhugavert. ég sendi líka sumum prófið í emaili! Segiði svo að maður hafi ekki nóg að gera svona einhleypur!!
En svona að öðru, þá virðist komin upp einhver deila um það hver hafi unnið bikarinn í Trivial Pursuit laugardaginn seinasta. ég veit ekki með alla hina, en Grumpa og monopoly unnu, en tæknilega unnu ég og Gözli. En svo er víst Satan Jarl ekki sáttur við það og vill fá endurtalningu á reitum og spurningum....
Hér er fín síða til að æfa sig á fyrir næsta leik: http://www.trivialpursuit.com/
Og svo, svona í lokin, þá langaði mig að láta ykkur vita að ég er búin að kaupa mér þriðja doðrantinn um það hvernig maður hleypur, eða setur einn fótinn fram fyrir hinn á meiri hraða en venjulega, en hún fjallar um hvernig á að hlaupa út í búð, hvernig á að hlaupa eins og dama í kokteilboði, hvernig á að hlaupast undan ábyrgð og hvernig á hægt er að koma í veg fyrir að hlaupa á sig, ásamt fleiru og fleiru....
Grumpa er reyndar búin að biðja um að fá hana lánaða...

8 Comments:

  • At February 16, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Shii! Ég er 37.6 ára gamall samkvæmt þessu RealAge dótaríi!! Út af hverju spyr ég?! Jú...út af því að ég nota ekki tannþráð á hverjum degi.
    Svo stunda ég ekki aðra heilsurækt en að spila í dauðarokksbandi, kappdrykkja og glasalyftingar og ég borða kjöt og reyki. Ég fæ + fyrir alkóhólneyslu þótt ég drekki aðallega sterkt áfengi milli klukkan 08:00 og 18:00 á daginn. Til að lagfæra þetta þá ég á víst að éta sojabaunir með brennivíninu meðan ég nota tannþráð og helst vera sofandi á meðan. Svo á ég að vakna og puða í heilsurækt í minnst 6 tíma á dag með hreinar neglur! Skalli er algert nónó svo það hef ég framyfir Gözlann og bjórvömbin er ekki til staðar á mér heldur.

    Bandaríkjamenn!....má ég þá frekar biðja um að það sé migið í eyrun á mér frekar en að hlusta á þá...

     
  • At February 16, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Ég er búin að komast að því að ég er ca. 37 ára gömul og ég á að taka meira e vítamín, borða meiri fisk, fara í blóðprufu og haga mér almennt betur á almannafæri...

     
  • At February 16, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    40ára !! ég sem varð 43ára í fyrradag :) og ef ég tek meira af e-vítamíni og dreg úr neyslu á rauðukjöti verð ég bráðum thirysomething jippííí :)

     
  • At February 16, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Monopoly er 40 ára, nokkrum kílóum of þung en stollt af hverjum ári og hverju kílói. Ég á barn sem heldur mér í formi, vinnu sem reynir á heilann, og stóra fjölskyldu og marga vini sem fá mig til að brosa og gráta með reglulegum millibil. Ef þetta gerir það að verkum að ég sé orðin 45 skv. einhverjum forriti þá segi ég bara: E-vítamín og sojabaunir MY BIG ASS !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

     
  • At February 17, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Segir þessi bók ekkert um það hvernig á ekki að hlaupa í spik? Best að ég taki þetta próf og sjái hversu gömul ég er? Yngist maður ekki við að spila tölvuleiki eins og mofo?

     
  • At February 17, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    ég fékk mér bókina "Tha sillyness of go out running when you can sit in your sofa and eat chocolate and drink red wine and be happy"

     
  • At February 18, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Ok, ég tek þessa síðu í sátt. Skv. henni er ég nebbblilega 36 ára. EN ef ég myndi éta meira af grænmeti og ávöxtum, hafa oftar samband við fjölskyldu og vini og nota tannþráð yrði ég 30 ára. Þetta þýðir að ég verð að stofna Vegetarian samyrkjubú fyrir vini og vandamenn þar sem allir setjast niður einu sinni á dag, eta sellerí og hreinsa tennurnar!!! Hvað segið þið um að flytja bara í Hlíðarnar?

     
  • At February 19, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Það er greinilega afskaplega hollt og gott að búa í hlíðunum, og Grumpa, má ég fá nýju bókina þína lánaða?

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home