Trivial Pursuit
Góðan daginn,
Helgin liðin og mér líður hundilla. Hugsanlega komin með einhverja flensuna, er kalt og mjög slöpp. En svo er ég kannski bara ofurþreytt eftir veturinn og þarf að fara í sólina í smá stund til að ná mér í D vítamín og meiri orku. :)
Anyway. Fór til Grumpu á laugardaginn seinasta í þeim undarlega tilgangi að spila trivial pursuit við karlrembur Reykjavíkur. Þetta er næsti bær við að fara í Bíngó á Vinabæ.... En þetta var nú allt saman rosalega skemmtilegt. Önnur karlremban beilaði reyndar á seinustu stundu og bar fyrir sig post drykkju þreytu. Karlremba og kvenremba (ég og Gözli) hefðum unnið spilið ef það hefði ekki verið fyrir lélegan tenging og lélega kastfimi liðsmanna. En sko ástæðan fyrir því að við unnum ekki var að við hittum aldrei á höfuðreitina og hringsóluðum um allt spjaldið og svöruðum ótrúlegustu spurningum sem fjölluðu um Kítín, Súgandafjörð og Svarta ísbirni (?!). En Grumpa og Monopoly þurftu bara að kasta einu sinni og þær komust á höfuðreit og fengu spurningu um hver er höfundur Latabæjar (í vísindaspurningu). Svona gekk þetta fyrir sig og í lokin fóru þær heim með bikarinn.
Þær eru sem sagt Trivial champions of the year 2007. Gengur bara betur næst.

5 Comments:
At February 12, 2007 ,
Anonymous said...
Smá leiðrétting á eigin skrift: Tenging á að vera teningur! Þið vitið, teningurinn var eitthvað lélegur.....
At February 12, 2007 ,
Anonymous said...
Uuu, 2007?!
Nei nei, Meistaramótið er ekki búið, þetta var bara upphitun fyrst ég var ekki með.
At February 12, 2007 ,
Anonymous said...
Monopoly fór og keypti 2 bleika siffon kjóla og ljósar hárkollur í stíl. Gözli og Satan Jarl spila þannig klæddir á næsta Trivial kvöldi hjá Frálæn Grumpu sem refsingu fyrir að beila til skiptis.
Og hvað þessa asnalegu útskýringu um teninga og höfuðreiti þá minnir Monopoly á kökuspurningu í flokknum Bókmenntir sem fjallaði um Guðjón Bergmann.
At February 13, 2007 ,
Anonymous said...
Meðan Forski og Gözli fengu spurningar um Guðjón Bergmann og ameríska forseta með flóðhestatennur (ekki rugla saman við þá sem eru með flóðhestaheila)þá fengum við spurningar um líffræði skordýra!!
At February 15, 2007 ,
Anonymous said...
Já, ég er alveg sammála Satani Jarl. Þetta var bara fyrsta syrpan í 2007 meistaramótinu. :) Og hvað Guðjón Bergmann varðar, þá er þetta mjög erfið spurning skal ég segja ykkur fyrir manneskju sem sérhæfir sig í miðaldarbókmenntum (Crétien de Troyes og Fabliaux!!) og feminískum bókmenntarannsóknum...Who is this Guðjón anyway!! :) Ég legg til að karlremburnar skipuleggi umferð tvö í trivial pursuit....:)
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home