Forskaren

Saturday, February 10, 2007

Kombakk

Hæ. Komin aftur í cyberheima eftir frekar langt hlé. Búin að vinna í tveimur vinnum og skrifa 35 síðna ritgerð í leiðinni. Hef semsagt ekki átt mér neitt líf undanfarna sex mánuði eða svo. En núna verður breyting á því!
Er að fara að útskrifast núna í lok febrúar og þá loksins búin með stóran kafla í lífi mínu. Hef alltaf viljað klára Háskólann, þannig að mér tókst að láta þann draum rætast!
Hef hins vegar ákveðið að hætta í annarri vinnunni og ætla bara að vera normal manneskja í smá stund og vinna í einni vinnu og eiga frí um helgar. Munður sem vinnualki veitir sér ekki alltaf.
Hef núna ákveðið að fara æfa hlaup að einhverju alvöru og ætla meira að segja að fara að hætta mér út í kuldann og rokið til að þjálfa upp lungu og hjarta. Þetta gerist ekki á einni nóttu skal ég segja ykkur, en það mun gerast. Ég lofa því. Þetta er líka mjög gaman. Keypti mér tvær hlussustórar bækur um hlaupasportið og þá sérstaklega handa konum. Er búin að liggja í þessum bókmenntum, enda búin að fá upp í háls (í bili) af alvarlegum og djúpum bókmenntum. Verð búin að jafna mig í vor. En þetta er í rauninni eins og þegar maður tekur þátt í maraþoni og reynir á líkamann til hins ítrasta. þá þarf maður að hvíla sig eftir á í nokkra stund. Þetta er eiginlega það sama með bókmenntafræði.
Annars vona ég að þið hafið öll haft það gott í vetur og hlakka til að heyra frá ykkur.

7 Comments:

  • At February 10, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Velkominn í cyberheim aftur Forski. Til hamingju með áfangann og gott að heyra að
    þu sért að komast í normið aftur.Það er góður staður til að vera :-)

     
  • At February 11, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Velkomin aftur Forski, þín var sárt saknað í cyberdyne

     
  • At February 11, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Velkomin aftur!!
    Er samt ekki alveg að fatta þetta með að kaupa leiðbeiningabækur um hlaup. Gengur það ekki bara út á að hreifa aðra löppina fram fyrir hina svona tiltölulega hratt? Þarf einhvern manual til þess?!

     
  • At February 11, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Nei, bara komið Cyperlíf aftur - jibbi kóla. Ég sem hélt að ég þyrfti kannski að fara að hafa "normal" samskipti við fólk, jafnvel fara í heimsóknir.

     
  • At February 12, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Hei hei!

    Er þá einhver séns á að fá dömurnar til að mæta á sveitta metaltónleika!

    Skoðið bara kempuna hér og segið svo að hann eigi ekki skilið eins og tvennar nærbrækur upp á svið!

    http://3070052608.slide.com/p/5/Birna+og+Karen?view=large

     
  • At February 12, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    http://3070052608.slide.com/p/5/
    Birna+og+Karen?view=large

    Umm, eitthvað var linkurinn kjánalegur, en hér er hann allur.

     
  • At February 12, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Jú, Grumpa þetta eru mikil vísindi að stunda hlaup. Það skiptir öllu máli hvernig þú setur löppina framfyrir hina skal ég segja þér. Þetta er mjög alvarlegt allt saman.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home