Forskaren

Tuesday, March 13, 2007

Moggablogg

Mér datt í hug að skella mér á Moggabloggið til að ræða þar alvarlegri mál og sýna kannski á mér aðra hlið en paródíu útgáfuna af mér. :)
Slóðin mín er þessi:http://ruthasdisar.blog.is/blog/ruthasdisar/
En ég vara ykkur samt við að það gæti verið einhver vandræði að kommenta ef þið eruð ekki skráð inn sem notendur á moggabloggið. Ég hef allavega lent í vandræðum með það og veit satt best að segja ekki hvort það er klaufaskapur í mér, gallar í vefsíðunni eða Makkinn sem ég er að vinna á. Þori ekki að stafhæfa neitt, en kíkið endilega í heimsókn til mín og skoðið alvarlegri hliðina á mér. Hún er nefnilega mjög áhugaverð skal ég segja ykkur. Ég hef nefnilega svo margt að segja.
Eigiði góðan dag.

9 Comments:

  • At March 13, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    ég kíkti á þetta og virðist sem óskráðum notendum sé gert sérstaklega erfitt fyrir að kommenta. Þú þarft að skrá nafn, símanúmer, netfang, kennitölu, hæð og þyngd (bannað að ljúga), háralit (hér er líka bannað að ljúga), hvað þú borðaðir á mánudaginn í síðustu viku, hvað þú kaust í alþingiskosningunum 1987, hver er formaður breska íhaldsflokksins, hvað amma þín var gömul þegar þú fæddist og geta svarað því hver skaut JR. Ef allt þetta er rétt þá færðu sendan tölvupóst innan 20 daga með aðgangsorði sem þú getur notað til að kommenta á skrif á mbl blogginu. Ísí písí

     
  • At March 14, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Það er gott að heyra að fleiri séu í vandræðum með að kommenta á Moggablogginu.Því að ég klikkaði alltaf á þessu Með JR. Var það ekki örugglega Sú Ellen sem skaut hann?

     
  • At March 15, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Var ekki fullt af fólki sem skaut JR í gegnum alla sápuna? Alla vega örugglega fullt af fólki sem vildi skjóta karl.
    Og hvernig dettur Forskinu í hug að það sé makkanum að kenna að hún geti ekki eitthvað í tölvuheimum??? Ég á bara ekki til eitt aukatekið orð!!!
    Annars hefur mig lengi langað til að byrja blogga og kannski ég opni blogg inn á Moggabloggi?

     
  • At March 15, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Fór inná Moggabloggið þitt, fínt blogg :) En það er tómt vesen að setja inn athugasemd. Ég reyndi og beið samviskusamlega eftir því að fá einhvern link í pósti sem kom svo ekki. Skoðaði betur og þá var villumelding. Fyrst segir ýttu á senda, sem maður gerir auðvitað ekki fyrr en maður er búin að skrifa kommentið og svo á að skrifa nafn og e-mail og allt það en þá kemur villa sem segir "tilgreina þarf texta athugasemdar". En þá er það ekki lengur hægt af því athugasemdarboxið er horfið af því ég ýtti á "senda" Ég verð grienilega bara að stofna Moggablogg til að vera þá innskráð.

     
  • At March 15, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Þetta er allt saman brella til að fá fólk til að skrá sig inn á moggabloggið!! Ætli þeir í Vinstri Grænum viti af þessu?

     
  • At March 18, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Til hamingu með nýja bloggið og ég prófaði að setja komment inn á sem óskráður og það var ekkert mál. Og svo verða allir vinir að passa sig að nú ert þetta nýja blogg alvar og Grumpa og Satan jarl eða (Zorglúbb) verða að sleppa því að ljóstra upp um hið villt eðli forska því þetta gæti ratað á vefsíðu mbl.... og er kannski einhver séns að Grumpa verði upgötvuð í netheimum og endi í réttarsal fyrir meiðyrði gegn ráðamönnum þjóðarinnar, Gísla MArteini og eiturgrænu framboði Tensai. Sem sagt nú er rétti tíminn til að eyða sönnunargögnum.

     
  • At March 19, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Vertu nú ekki að setja hugmyndir inn hjá sumum ónefndum Móðir Jörð. það gæti haft skelfilegar afleiðingar!!

     
  • At March 19, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Varir mínar eru selaðar frá og með núna!

     
  • At March 20, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    ohohohohohoho........

    >:D

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home