Berjablámi og bakverkir
Púff, núna er loksins komið að því! Aldurinn náði mér loksins (ætli það sé þessu aldursprófi að kenna sem ég tók um daginn?!)Haldiði ekki að Forski, sem er algjörlega fræg fyrir að vera ofurheilsuhraust hafi ekki farið í bakinu í vikunni?! Geri aðrir betur? Núna geng ég eins og ég hafi týnt göngugrindinni minni og sé algjörlega bjargarlaus án hennar...Eina leiðin til að losna við þennan skelfilega bakverk er að ganga eða hlaupa eins og brjálæðingur. Og viti menn, haldiði ekki að Forski hafi gengið alveg rosalega hratt til Grumpu í kvöld. Þar var að sjálfsögðu tekið á móti henni með opnum örmum og svona í tilefni af því að gamalmennið hún Forski er að útskrifast á morgun, þá var að sjálfsögðu opnuð vínflaska, og ekki leið að löngu þangað til kerlingar voru farnar að rifja upp gamla tíma eins og þegar skyrið fékkst eingöngu í plastumbúðum, gallsúrt og óblandað og þegar það þótti ofurkúl að fá smámynt og tyggigúmmí sent frá pennavininum í Ameríku... Það var einnig farið út í alvarlegri umræður eins og Klámráðstefnuna og Baugsmálið. Við spáðum reyndar mikið í það um hvað þetta óskaplega hættulega bréf sem barst dómurunum skyldi hafa fjallað um....við komumst reyndar ekki að neinni niðurstöðu, heldur urðum bara berjabláar um munninn í staðin. Við vorum svo truflaðar af ofursportista Reykjavíkur. hann kom æðandi inn, voðalega glaður, með pizzu í hendinni, og við sem vorum einmitt að kvarta undan öllum kílóunum sem Guð var búin að hlaða á háaldraðar saklausu stúlkurnar með hækkandi árafjölda....en hann getur semsagt borðað óhollt fæði (ólíkt sumum) eins og ekkert sé, enda hleypur hann 35 kílómetra á dag og syndir 15 mílur eftir það, auk þess sem hann kennir dans 6 sinnum í viku. Nú var Forska gamalmenni allri lokið. Loksins þegar mér tókst að standa upp úr stólnum, þá var sportý búin að klára pizzuna, taka nokkur heljarstökk og senda 113 konum skilaboð á Myspace. Annars tókst mér nú að ganga ofurhratt heim, enda mikið mál að pissa, og núna þegar ég sit við tölvuna, þá finn ég ekki fyrir bakinu á mér....ætli það sé gott eða slæmt?? I wonder. :)Ætla að sofa á gólfinu í nótt með lappirnar uppi á rúminu....Sjáum hvort ég mæti með staf á útskriftarathöfnina á morgun...
3 Comments:
At February 25, 2007 ,
Anonymous said...
eins og margar rannsóknir hafa bent á þá er rauðvín allra meina bót og ætti ekki að innbyrðast sjaldnar en þrisvar í viku
At February 27, 2007 ,
Anonymous said...
Til hamingju með útskriftina elsku Forski! Já nú kemstu ekki lengur hjá því að lesa Réttarhöldin eftir Kafka, orðin sprenglærður bókmenntafræðingur og allt. Svo þegar þegar þú ert búin með skræðuna þá arna þá getum við brennt Kafka eins og hann leggur sig...ha ha ha...
At February 28, 2007 ,
Anonymous said...
Hvað þarf ég að segja þér þetta oft Tensai San frá Alþingishúsinu? Ég er búin að lesa Kafka aftur á bak og áfram....og vei þeim sem dettur í hug að brenna bækur og hvað þá meistara eins og Kafka!!
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home