Að latast i vinnunni
Hvað á maður að gera af sér þegar maður er svo duglegur í vinnunni að maður klárar allar þýðingar og textavinnu á morgni miðvikudags og hefur síðan ekkert meira að gera í vinnunni það sem eftir er vikunnar? Jú, maður fer og brásar á netinu, hugsar um heimspeki, sendir tölvupóst á alla sem maður er búin að trassa að hafa samband við upp á síðkastið, pantar tíma hjá þeim sem maður er búin að trassa að panta tíma hjá og fer síðan að hugsa hvort maður eigi nú ekki bara að skella sér í mastersnám fyrst maður er nú byrjaður á þessari skólagöngu sinni! Það halda svo allir að maður sé alveg svakalega busy og hafi alveg rosalega mikið að gera í tölvunni. Þetta er nefnilega svolítil list að láta líta út fyrir að maður hafi nóg að gera í vinnunni skal ég segja ykkur..
Annars fór ég í Bónus að versla í gær og svosem ekki í frásögum færandi nema að ég fann engan veginn fyrir þessari svokölluðu lækkun á matarverði. Það eina sem ég fann reyndar var súkkulaði á 59 krónur og að sjálfsögðu var því raðað pent í matarkörfuna. Hvað græðir maður á því að súkkulaðismákökur og gos lækkar í verði? Annað en stærri björgunarhring utan um mittið? Og nei, Grumpa, ég er ekki að tala um eðal súkkulaði frá Belgíu eða Sviss!! :) Þau teljast ekki með! Ha Ha!
Annars er bruns sunnudagur framundan og ég kemst því miður ekki í það teiti. Ég er að fara austur eftir vinnu í dag og ætla að mæta í afmælisveisluna hennar mini Móður Jarðar sem verður formlega haldin seinni partinn á sunnudaginn. En, þeir sem mæta, vona ég að njóti vel. Fór annars að sjá Little miss Sunshine i vikunni og fannst hún algjörlega frábær! Ekkert smá sæt mynd!
Eigið svo góða helgi og hagið ykkur vel!

2 Comments:
At March 03, 2007 ,
Anonymous said...
þessi vsk lækkun er bara cheap kosningabrella. mér finnst alla vega matur ennþá fáránlega dýr þótt jógútdollan lækki um 3 krónur og pulsupakkinn um 50 kall. væri ekki nær að afnema ofurvernadatolla og vörugjöld? þá kæmu kanski útlendar lágvöruverslanir hingað og Bónus fengi samkeppni
At March 03, 2007 ,
Anonymous said...
Ef þú lifir á súkkulaði og kók finnur þú örugglega fyrir þessari lækkun, en ef þú borðar bara lífræntræktað grænmeti og egg sem hamingjusamar hænur hafa verpt lækka matarútgjöldin sama og ekki neitt.
Monopoly verður því miður að boða afföll á morgun í brönchinn. Ekki er það vegna kosningafundar í Hreyfingunni Hamingjusömu eða samkvæmisónota heldur á að skella sér og Mini Monopoly í leikhús að sjá hina Ægilegu Karíus og Baktus.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home