Forskaren

Friday, March 30, 2007

Þursabit og fleira skemmtilegt

Jæja kæru bloggfélagar. Haldiði ekki að ég hafi hreinlega slasað mig í ræktinni um daginn (svona næstum því). En þannig er mál með vexti að bakið hefur verið að stríða mér undanfarið, en mér hefur tekist að fara vel með mig og verkurinn því nánast horfinn. Ég sem er svo bjartsýn alltaf, langaði nú aldeilis að taka af mér nokkur fitugrömm og dreif mig þess vegna á þrekhjólið efitr minn venjulega tíma á hlaupabrettinu. Og hvað haldiði að hafi gerst þegar ég stóð upp? Ég hreinlega gat ekki hreyft mig fyrir verkjum og stífleika í bakinu. Ég gekk út úr ræktinni eins og spýtukall og æpti upp yfir mig á leiðinni heim þar sem gíraskiptingin var ekki mjög þægileg. Núna er ég semsagt búin að maka á mig hitakremi og þar með búin að svæla alla vinnufélagana út úr skrifstofunni og bryðja Voltaren Rapid allan daginn. Ég er ekki vön því að taka sterk verkjalyf, þannig að þessi vika er eiginlega búin að vera hálfgerð rokkæla hjá mér.
Annars er mig farið að gruna að Grumpa sé að detta í einhvers konar áhættufikn, eða jafnvel einhvers konar sjálfseyðileggingu. Hún gerði sér lítið fyrir og fór með verstu karlrembum landsins til London og upplifði þar rokkæluvitleysu eins og hún gerist verst. Ég held að hún sé að sýna fram á hvað gerist ef við í kokteil- og trufflufélaginu hættum við að fara til Rómar til að upplifa rómantískar stundir með ítölskum hestasveinum, drekkum eðalvín sem er framleitt af staðnum og borðum súkkulaði sem bráðnar í munni og í maga. Ég held Það sé tími til komin að halda konukvöld þar sem bleikir kokteilar eru hafðir við hönd og einni marens skellt í ofninn. Annars missti ég nú af einu slíku í gærkvöldi þar sem ég sat með tárin í augunum og upplifði Sinfóníutónleika.
Eigið góða helgi!

4 Comments:

  • At March 30, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Ég sit hér klökkur, uppfullur af stolti yfir þessum ummælum um mig.

    Ég ætla að prenta þetta blogg út og ramma það inn.

     
  • At March 30, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Maður verður bara að skoða stöðu mála blákalt. Brönsklúbburinn beilaði á Róm þannig að þegar Karlrembufélagið ákvað að bregða sér í rokkæluferð (sem þurfti ekki að plana með 8 mánaða fyrirvara og hugsa um í 2 mánuði til viðbótar og beila svo á öllu saman) var þetta aldrei spurning!
    Rokkæla rules!!

     
  • At April 02, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Grumpa mín, þér verður snúið til betri vegar núna um páskana. Þú kemur frelsuð tilbaka! :)

     
  • At December 08, 2012 , Anonymous Anonymous said...

    Loose [url=http://www.greatinvoices.com]invocing solution[/url] software, inventory software and billing software to beget competent invoices in bat of an eye while tracking your customers.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home