Forskaren

Tuesday, May 15, 2007

Eins og vindgöng?

Kosningarnar og Eurovision afstaðin og það fór sem fór; stjórnin hélt velli og austur evrópuþjóð vann söngvakeppnina!
Surprise surprise! :)
Annars verð ég bara að segja ykkur frá því hvað mér fannst fyrirsögn Fréttablaðsins í morgun fyndin! Ég veit ekki hvort þetta hefur verið Samfylkingarmaður/kona sem skrifaði þessa forsíðufrétt, en hún hljóðar svo: ,,Framsókn opin í báða enda" (!!)
Ég verð eiginlega að segja, sem bókmennta- og menningarfræðingur, þá er nú aldeilis hægt að túlka þessa setningu á mjög fyndin hátt. Eins og margir hafa vafalaust velt fyrir sér, þá virðist Framsókn ekki tilheyra neinni stjórnmálastefnu eða stjórnmálaflokki ef því er að skipta. Hann virkar samkvæmt forsíðu Fréttablaðsins í rauninni bara vera hálfgerð vindgöng þar sem loftið blæs frjálst um og þar sem ekkert finnst....nema jú loft! :)
Kíkiði annars á þetta! Svona ef þið hafið ekkert að gera í vinnunni eða heima hjá ykkur á kvöldin þegar börnin eru sofnuð:

http://us.mms.com/us/dark/dark_game.jsp

maður á víst að finna 50 kvikmyndatitla út úr þessu. :)
Skemmtið ykkur vel

3 Comments:

  • At May 16, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    ég fann 3 myndir - og ekki söguna meir. Ætli það sé út af því að ég horfi svo sjaldan á bíómyndir, af því að ég er svoooo busy í barnauppeldi og vinnu EÐA er fattarinn bara svo langur eftir barnauppeldi og vinnu?

     
  • At May 16, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Veit annars einhver hvað kom fyrir myndaíðuna hennar Grumpu? Ég get ekki opnað hana.

     
  • At May 23, 2007 , Anonymous Anonymous said...

    Yes .. búin að finna 41 mynd og er að verða brjáluð því ég finn ekki hinar 9 arrrgg þoli ekki svona. Ég hef kannski smá forskot sko ... móðir mín er forfallin HORROR mynda sjúklingur og hef ég því NEYÐST til að horfa á margar, en auðvitað er ég líka ógeðslega klár hehe

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home