Eftir langt hlé sest ég nú enn og aftur við þetta elsta blogg mitt til að pára nokkrar hugsanir niður á blað.
það er brjálað að gera í vinnunni og er ég einmitt að stela mér tíma núna til að hripa hérna nokkrar línur. Hef svosem ekkert alltof mikið að segja eins og er. Nema í gær fóru ég og Grumpa í leiðangur upp í Hvalfjörð. Ég verð að segja að ég hef ekki komið þangað upp eftir í mörg ár. það var rosalega gaman að koma þarna og sjá svæðið allt í nýju ljósi. Maður ferðaðist yfirleitt þarna um í gamla daga, fastur aftur í einhverjum skrjóði og beið einungis efitr að Hvalfirðinum lyki svo maður kæmist í ævintýrið sem biði manns handan hans. En, við Grumpa stoppuðum á einum fimm stöðum, löbbuðum, rannsökuðum, klifruðum og skoðuðum allt sem okkur datt í hug. Flestir voru þetta staðir sem ég hef aldrei stoppað á, heldur aðeins keyrt framhjá í gamla daga.
Við vorum báðar hálf hissa á allri umferðinni þarna uppfrá. Ég hafði einhvern veginn alltaf ímyndað mér Hvalfjörðinn hálf eyðilegan eftir að göngin opnuðu, en því fer nú fjarri skal ég segja ykkur. Þarna var bara ansi mikil umferð og mest hissa urðum við held ég þegar við keyrðum framá forláta bensínstöð sem var opin svona seinni part dags. Ekki nóg með það, heldur var nóg að gera hjá afgreiðslukonunni sem hafði greinilega bara hlaupið úr nærliggjandi húsi með barnavagninn til að svala þorsta forvitinna ferðalanga. Hún lét ekki barnavagninn, né barnið slá sig út af laginu og afgreiddi tertusneiðar og ís með dýfu af stakri prýði. maður var semsagt virkilega komin upp í sveit. :)
Svo urðum við Grumpa svo frægar í lokin að skunda niður á Akranes, en þangað hef ég ekki komið í tuttugu ár!! Ég veit, þetta er steinsnar frá Reykjavík, en samt hef ég aldrei látið mér detta í hug að fara í bíltúr þangað uppeftir...
Bærinn er reyndar ekkert ókaplega fagur, krúttlegur né merkilegur í mínum augum, en ég verð samt að segja að við duttum inn á mjög svo skemmtilegt og frumlegt kaffihús þar sem við fengum okkur eðal kaffi (keypt frá TE og KAFFI) og beyglu og súkkulaði með.
Frábær ferð í frábærum félagsskap, Takk fyrir að vera til Grumpa!! :)