Sjálfsmat
Jæja, áhuginn á blogginu fer greinilega minnkandi með hverjum deginum. Ekki það að mér er svosem sama. Ég tala þá bara við sjálfa mig enda finnst mér svo gefandi að sjá mína eigin rödd opinberlega. En talandi um opinberar raddir að þá sá ég Virkjunina seinasta fimmtudag. Og ég átti von á öllu svei mér þá. Mér hreinlega kveið fyrir því að sitja þarna í rúmlega tvo tíma og horfa á hundleiðinga absúrd sýningu sem ég mundi ekki skilja neitt í. En viti menn, Ég verð nú bara að segja að þetta verk var með því frumlegasta sem ég hef séð á fjölum leikhússins. Ekki það að viðfangsefnið var ansi klisjukennt. EN það var um manninn og náttúruna og hversu mikið við erum alltaf að skemma náttúruna og að við eigum nú bara að skammast okkar svolítið fyrir að fara svona með lítilmagnann og bla bla bla....En það besta við sýninguna að hún er sett fram á mjög frumlegan og krefjandi hátt. Þú ert actually beðin að hugsa á þessari sýningu, en því nenna leikhúsfarar svona yfirleitt ekki þannig að sýningin hefur fallið og ég verð að segja að allar þessar skelfilegu gagnrýnirsraddir sem hafa heyrst í Súsönnu Svavars ásamt fleirum finnst mér nú ekki alveg eiga rétt á sér. En ætli það sé nokkuð pláss fyrir svona sýningar í leikhúsinu lengur svona yfirleitt? Ég held eiginlega ekki og kannski var það aldrei raunin.
Annars, hvað finnst ykkur um að aularnir í hernum séu að fara frá landinu? Mér finnst þetta besta frétt síðan Rás Tvö kom til sögunnar!! Pæliði í því að losna við meirihlutann af þessu White/black/Hispanic trash liði sem sprettur úr ameríska hernum og hyskinu sem fylgir þessu liði....Ég er alveg rosalega glöð!
Lifið annars heil....fyrir utan hyskið í Hotown á Reykjanesi ofcourse....