Einfaldir Íslendingar
Mér finnst stundum svo fyndið að tala við erlenda aðila - en nóg er víst af þeim núna í nýbyggingu IKEA í Garðarbænum um þessar mundir - en þeir vilja einhvern veginn meina að við Íslendingar séum svo einfaldir vegna þess að við kunnum ekki að flækja málin eins vel og aðrar þjóðir. En þetta finnst til dæmis Þjóðverjum voðalega mikill galli. En þar sem allir vita nú hvernig Þjóðverjar geta flækt hinu einföldustu mál, þá er þetta ansi skondið. Málið er að þetta er bara ósköp einfalt. Ekki flækja málin og hafðu lífið einfalt!
Mikið er ég stundum hamingjusöm yfir því að vera einföld og íslensk!!
Mikið er ég stundum hamingjusöm yfir því að vera einföld og íslensk!!