Forskaren

Thursday, April 06, 2006

Golfarar og umferðarómenning

Fyrst ég er nú komin á bíl og er því farin að lifa í umferðarmenningunni aftur, Og þar sem ég er nú mikil menningarfræðikona þá get ég varla orða bundist yfir umferðarómenningu Íslendinga. Þetta er með ólíkindum hvernig fólk hefur enga stjórn á ökutækjunum. en það hefur náttúrulega engan tíma til að vera yfirhöfuð að stjórna þessum druslum. Ég meina, maður þarf nú að tala í símann, borða morgunmat, lesa moggann og hella upp á kaffi, og allt á meðan maður er að keyra niður ártúnsbrekkuna for crying out loud!! Hvað framúrakstur varðar, þá er ég alveg steinhissa hvað mörgum er eiginlega alveg sama um líf sitt. Fólk vill heldur deyja heldur en að vera einhver lúði sem hangir í rassinum á einhverjum trukki langleiðina upp að litlu kaffistofunni. Og þá komum við að Golfurunum. En það er sérstakt menningarfyrirbrigði á íslandi. Það eru litlir drengir sem eru komnir í mútur og búnir að vera með bílpróf í nákvæmlega 43 og hálfan dag. Þeir fara og kaupa sér Volkswagen Golf og þá helst glænýjan og siflurgráan eða svartan (því að það er so kúl maðr´r) og allt á 100% lánum að sjálfsögðu. Þetta eru oftast drengir sem vinna í vörumóttöku Eimskips á lyftara eða vinna í sjoppu uppi í Breiðholti. En svo fara þessir drengir út að keyra..... OH MY GOD! segi ég nú bara! Þeir hafa nákvæmlega enga stjórn á þessum tækjum. Þú getur séð panikið í aksturslaginu og það eru alltaf þessir sem að reyna að troða sér á ólíklegustum stöðum, fara fram úr 10 sek áður en akreinin tvöfaldast og aka þversum yfir alla miklubrautina til að komast inn á einhverja beygjuakrein. Það er næstum hægt að heyra angistarópin í þessum Drengjum þegar þeir reyna að finna bremsuna og fálma út í loftið til að reyna að skipta um gír. Oftar en ekki heyrir maður: ,,Maaaaammmmmmaaaaa!" út úr þessum bílum. Aumingja drengirnir. En svo gerist þetta nefnilega líka með fullorðna karlmenn sem stíga inn í þennan skrýtna smábíl sem olli þessum rosalega stóra misskilningi að Volkswagen Golf væri nú eiginlega bara rosa kúl bíll og svona hálfgerður sportbíll!! Íslendingar eru stórskrítin þjóð, ég get ekki sagt annað.

Tuesday, April 04, 2006

Menningarfræði

Nei Monopoly! Svo ég svara nú seinasta kommenti. Bloggið er sko ekki enn orðin deyjandi listgrein í hópnum. Málið er bara að núna er að hefjast hið ógnvænlega tímabil í lífi Forska þar sem hún gerir heiðarlega tilraun til að lesa yfir sig í eitt skitpið fyrir öll. Dæmi aðrir um hvort það hafi nú þegar tekist eða ekki....
en ég er semsagt búin að liggja gjörsamlega yfir menningarfræði seinustu vikurnar og er algjörlega heilluð að þessari fræðigrein. mér finnst þetta svo skemmtilegt að ég læri í svefni og vakna nánast upp á hverjum morgni með fullsmíðaða kenningu í hausnum. Allt sem ég heyri og skoða þessa dagana er greint útfrá menningarfræðilegum pælingum. Þetta er alveg hrikalega skemmtilegt viðfangsefni og mæli ég með því við alla að kaupa sér eina skemmtilega menningarfræðibók til að lesa sér til yndisauka í vorhlýjunni.
Annars veit ég ekki hvort allar kellingarnar í hópnum okkar eru búnar að frétta af snilldarhugmyndinni hennar Fröken likjör. En hún hljóðar þannig að framvegis verður alltaf hist annan hvern sunnudagsmorgun á kaffihúsi í borginni og farið yfir málin, hvort sem það eru karlamál, heimsmál eða mittismál. Mér finnst þetta brilliant hugmynd og ég ætla að vera fyrst á staðin á sunnudaginn kemur. En þá verður hópurinn vígður með kaffibolla og kleinu (svona kannski, ef mittismálið leyfir) klukkan 11 á kaffitár á Laugaveginum. Og mæti nú allir sem geta barnapíu valdið.