Forskaren

Saturday, February 24, 2007

Berjablámi og bakverkir

Púff, núna er loksins komið að því! Aldurinn náði mér loksins (ætli það sé þessu aldursprófi að kenna sem ég tók um daginn?!)Haldiði ekki að Forski, sem er algjörlega fræg fyrir að vera ofurheilsuhraust hafi ekki farið í bakinu í vikunni?! Geri aðrir betur? Núna geng ég eins og ég hafi týnt göngugrindinni minni og sé algjörlega bjargarlaus án hennar...Eina leiðin til að losna við þennan skelfilega bakverk er að ganga eða hlaupa eins og brjálæðingur. Og viti menn, haldiði ekki að Forski hafi gengið alveg rosalega hratt til Grumpu í kvöld. Þar var að sjálfsögðu tekið á móti henni með opnum örmum og svona í tilefni af því að gamalmennið hún Forski er að útskrifast á morgun, þá var að sjálfsögðu opnuð vínflaska, og ekki leið að löngu þangað til kerlingar voru farnar að rifja upp gamla tíma eins og þegar skyrið fékkst eingöngu í plastumbúðum, gallsúrt og óblandað og þegar það þótti ofurkúl að fá smámynt og tyggigúmmí sent frá pennavininum í Ameríku... Það var einnig farið út í alvarlegri umræður eins og Klámráðstefnuna og Baugsmálið. Við spáðum reyndar mikið í það um hvað þetta óskaplega hættulega bréf sem barst dómurunum skyldi hafa fjallað um....við komumst reyndar ekki að neinni niðurstöðu, heldur urðum bara berjabláar um munninn í staðin. Við vorum svo truflaðar af ofursportista Reykjavíkur. hann kom æðandi inn, voðalega glaður, með pizzu í hendinni, og við sem vorum einmitt að kvarta undan öllum kílóunum sem Guð var búin að hlaða á háaldraðar saklausu stúlkurnar með hækkandi árafjölda....en hann getur semsagt borðað óhollt fæði (ólíkt sumum) eins og ekkert sé, enda hleypur hann 35 kílómetra á dag og syndir 15 mílur eftir það, auk þess sem hann kennir dans 6 sinnum í viku. Nú var Forska gamalmenni allri lokið. Loksins þegar mér tókst að standa upp úr stólnum, þá var sportý búin að klára pizzuna, taka nokkur heljarstökk og senda 113 konum skilaboð á Myspace. Annars tókst mér nú að ganga ofurhratt heim, enda mikið mál að pissa, og núna þegar ég sit við tölvuna, þá finn ég ekki fyrir bakinu á mér....ætli það sé gott eða slæmt?? I wonder. :)Ætla að sofa á gólfinu í nótt með lappirnar uppi á rúminu....Sjáum hvort ég mæti með staf á útskriftarathöfnina á morgun...

Tuesday, February 20, 2007

Tölvuleikir

Hver sagði svo að tölvuleikir væru ekki hættulegir??? :)
Kíkið á þessa síður: www.wiihaveaproblem.com

Thursday, February 15, 2007

My Real Age



Núna er ég búin að sitja í eina klukkustund við tölvugarminn til að fá úr því skorið hvort ég sé eldri eða yngri en minn eiginlegi aldur segir til um.
Farið á þessa síðu og tékkið á hvort þið eruð enn á táningsaldri eða á leiðinni inn á elliheimilið: http://www.realage.com/index.aspx
Ég nefni engin nöfn, en ég er nú ekki alveg viss um að allir bloggarar eigi eftir að fá sömu niðurstöður í Realage testinu....sumir eiga væntanlega eftir að fá lægra en aðrir....ég er til dæmis alveg viss um að Satan Jarl og Gözli séu ansi ungir í anda..
Ég er ekki búin að fá niðurstöðurnar sjálf(fæ þær formlega sendar í emaili eftir eina eða tvær klukkustundir), en eftir að ég sagði að ég væri ógift, barnlaus og byggi í friði og spekt, ein með sjálfri mér, þá rauk ég allt í einu úr 30 ára aldri upp í 37,7. Að lifa í ró og friði og í hamingjusömu sambandi við sjálfan sig er greinilega mikill áhættuþáttur í lífi manns. Ég segi nú bara, er ekki meiri hætta á að maður fái hjartaáfall, lungnasjúkdóm eða deyi fyrir aldur fram af einhverjum stresstengdum sjúkdómi ef maður er að standa í hjónabandi og að ala upp brjáluð börn? Ég bara spyr svona í sakleysi mínu? Er hætta á að manni leiðist svo mikið ef maður er einhleypur að maður drepist hreinlega úr leiðindum? Þetta heitir að eiga tíma fyrir sjálfan sig, njóta þess að vera til, upplifa allt sem maður ætlaði sér áður en maður deyr (fyrir aldur fram greinilega)og að láta drauma sína rætast!
Ekki misskilja mig samt, börn eru yndisleg og ég væri ekkert á móti því að eignast lítið kríli, og karlmenn eru víst yndislegir líka, það er víst því miður ekki hægt að lifa algjörlega án þeirra.... :). En maður þarf nú samt ekki að vera í meiri lífshættu ef maður velur að fara aðra leið. Er það nú ekki svolítið ýkt! Erum við ekki öll ólík og mismunandi. Allir velja sér sína leið og fara hana bara. ég held ekki að ég sé í neinni meiri lífshættu en aðrir þó að ég eigi ekki karlpening til að röfla í heima. Takiði annars þetta próf, það er mjög áhugavert. ég sendi líka sumum prófið í emaili! Segiði svo að maður hafi ekki nóg að gera svona einhleypur!!
En svona að öðru, þá virðist komin upp einhver deila um það hver hafi unnið bikarinn í Trivial Pursuit laugardaginn seinasta. ég veit ekki með alla hina, en Grumpa og monopoly unnu, en tæknilega unnu ég og Gözli. En svo er víst Satan Jarl ekki sáttur við það og vill fá endurtalningu á reitum og spurningum....
Hér er fín síða til að æfa sig á fyrir næsta leik: http://www.trivialpursuit.com/
Og svo, svona í lokin, þá langaði mig að láta ykkur vita að ég er búin að kaupa mér þriðja doðrantinn um það hvernig maður hleypur, eða setur einn fótinn fram fyrir hinn á meiri hraða en venjulega, en hún fjallar um hvernig á að hlaupa út í búð, hvernig á að hlaupa eins og dama í kokteilboði, hvernig á að hlaupast undan ábyrgð og hvernig á hægt er að koma í veg fyrir að hlaupa á sig, ásamt fleiru og fleiru....
Grumpa er reyndar búin að biðja um að fá hana lánaða...

Monday, February 12, 2007

Trivial Pursuit

Góðan daginn,
Helgin liðin og mér líður hundilla. Hugsanlega komin með einhverja flensuna, er kalt og mjög slöpp. En svo er ég kannski bara ofurþreytt eftir veturinn og þarf að fara í sólina í smá stund til að ná mér í D vítamín og meiri orku. :)
Anyway. Fór til Grumpu á laugardaginn seinasta í þeim undarlega tilgangi að spila trivial pursuit við karlrembur Reykjavíkur. Þetta er næsti bær við að fara í Bíngó á Vinabæ.... En þetta var nú allt saman rosalega skemmtilegt. Önnur karlremban beilaði reyndar á seinustu stundu og bar fyrir sig post drykkju þreytu. Karlremba og kvenremba (ég og Gözli) hefðum unnið spilið ef það hefði ekki verið fyrir lélegan tenging og lélega kastfimi liðsmanna. En sko ástæðan fyrir því að við unnum ekki var að við hittum aldrei á höfuðreitina og hringsóluðum um allt spjaldið og svöruðum ótrúlegustu spurningum sem fjölluðu um Kítín, Súgandafjörð og Svarta ísbirni (?!). En Grumpa og Monopoly þurftu bara að kasta einu sinni og þær komust á höfuðreit og fengu spurningu um hver er höfundur Latabæjar (í vísindaspurningu). Svona gekk þetta fyrir sig og í lokin fóru þær heim með bikarinn.
Þær eru sem sagt Trivial champions of the year 2007. Gengur bara betur næst.

Saturday, February 10, 2007

Kombakk

Hæ. Komin aftur í cyberheima eftir frekar langt hlé. Búin að vinna í tveimur vinnum og skrifa 35 síðna ritgerð í leiðinni. Hef semsagt ekki átt mér neitt líf undanfarna sex mánuði eða svo. En núna verður breyting á því!
Er að fara að útskrifast núna í lok febrúar og þá loksins búin með stóran kafla í lífi mínu. Hef alltaf viljað klára Háskólann, þannig að mér tókst að láta þann draum rætast!
Hef hins vegar ákveðið að hætta í annarri vinnunni og ætla bara að vera normal manneskja í smá stund og vinna í einni vinnu og eiga frí um helgar. Munður sem vinnualki veitir sér ekki alltaf.
Hef núna ákveðið að fara æfa hlaup að einhverju alvöru og ætla meira að segja að fara að hætta mér út í kuldann og rokið til að þjálfa upp lungu og hjarta. Þetta gerist ekki á einni nóttu skal ég segja ykkur, en það mun gerast. Ég lofa því. Þetta er líka mjög gaman. Keypti mér tvær hlussustórar bækur um hlaupasportið og þá sérstaklega handa konum. Er búin að liggja í þessum bókmenntum, enda búin að fá upp í háls (í bili) af alvarlegum og djúpum bókmenntum. Verð búin að jafna mig í vor. En þetta er í rauninni eins og þegar maður tekur þátt í maraþoni og reynir á líkamann til hins ítrasta. þá þarf maður að hvíla sig eftir á í nokkra stund. Þetta er eiginlega það sama með bókmenntafræði.
Annars vona ég að þið hafið öll haft það gott í vetur og hlakka til að heyra frá ykkur.