Ástir og appelsínur
Jú, mikið rétt. Eros hefur eitthvað fílað þessa ritgerð sem ég skrifaði í vor og kannski hefur hann hreinlega heyrt særingarnar sem ég fór með kvöldin sem ég sat sveitt við rannsóknir á Pan og lifnaðarhætti hans. Forski er núna farin að læra spænsku og allt um Navy Seals. Það var þó ekki að ég yrði svo heppin að hitta hinn fullkomna mann. Yndislegur algjörlega og mig langar að æða að öllum og segja hversu hamingjusöm ég er. Ég brosi allan daginn eins og ég hafi fest herðatré í munninum á mér. Allt í einu er mér alveg sama þó að ég þurfi að borga toll af 12 vindstigum og 2500 krónur fyrir eina papriku. Mér er alveg sama þó að ég fái bara eina tegund af lauk sem eftir er og mér er alveg sama þó að ég yrði dæmd (fyrir tollsvik) til að eyða því sem eftir er lífsins á grænlandsjökli. Bara svo lengi sem ástin mín er með mér. Það var þó aldrei að Forski myndi finna sína einu sönnu ást!!!
Við erum búin að hlaupa um á ströndinni (sýnd hægt að sjálfsögðu) með Michael Bolton undirspili. Við fórum út að róla saman í gær og á morgun ætlum við út á Þingvallavatn og hann ætlar að róa bátnum og ég ætla að halda á sólhlífinni í hvíta kjólnum. Hann ætlar að fara með ljóð (á spænsku að sjálfsögðu) og ég fell í ómegin af ást.
Framhald síðar