Forskaren

Friday, March 30, 2007

Þursabit og fleira skemmtilegt

Jæja kæru bloggfélagar. Haldiði ekki að ég hafi hreinlega slasað mig í ræktinni um daginn (svona næstum því). En þannig er mál með vexti að bakið hefur verið að stríða mér undanfarið, en mér hefur tekist að fara vel með mig og verkurinn því nánast horfinn. Ég sem er svo bjartsýn alltaf, langaði nú aldeilis að taka af mér nokkur fitugrömm og dreif mig þess vegna á þrekhjólið efitr minn venjulega tíma á hlaupabrettinu. Og hvað haldiði að hafi gerst þegar ég stóð upp? Ég hreinlega gat ekki hreyft mig fyrir verkjum og stífleika í bakinu. Ég gekk út úr ræktinni eins og spýtukall og æpti upp yfir mig á leiðinni heim þar sem gíraskiptingin var ekki mjög þægileg. Núna er ég semsagt búin að maka á mig hitakremi og þar með búin að svæla alla vinnufélagana út úr skrifstofunni og bryðja Voltaren Rapid allan daginn. Ég er ekki vön því að taka sterk verkjalyf, þannig að þessi vika er eiginlega búin að vera hálfgerð rokkæla hjá mér.
Annars er mig farið að gruna að Grumpa sé að detta í einhvers konar áhættufikn, eða jafnvel einhvers konar sjálfseyðileggingu. Hún gerði sér lítið fyrir og fór með verstu karlrembum landsins til London og upplifði þar rokkæluvitleysu eins og hún gerist verst. Ég held að hún sé að sýna fram á hvað gerist ef við í kokteil- og trufflufélaginu hættum við að fara til Rómar til að upplifa rómantískar stundir með ítölskum hestasveinum, drekkum eðalvín sem er framleitt af staðnum og borðum súkkulaði sem bráðnar í munni og í maga. Ég held Það sé tími til komin að halda konukvöld þar sem bleikir kokteilar eru hafðir við hönd og einni marens skellt í ofninn. Annars missti ég nú af einu slíku í gærkvöldi þar sem ég sat með tárin í augunum og upplifði Sinfóníutónleika.
Eigið góða helgi!

Tuesday, March 20, 2007

Veik enn og aftur

Jæja, þá er ég enn einu sinni lögst í veikindi á þessu ári. Mér finnst þetta nú orðið svolítið dularfullt!! Ætli það sé verið að eitra fyrir mér? Nei, ætli það. Ég býst við að þetta sé nú bara svona standard flensufaraldur sem ég er að ná mér í. Annars finnst mér ég alltaf eiga einhvern veginn ekki að geta verið veik. Búin að hamast í ræktinni seinustu mánuðina og fæ ekkert annað en bakverk og flensu að launum. :)
En maður er víst ekki ósigrandi og maður reynir þá bara að lesa eins mikið og maður getur á meðan maður liggur upp í sófa.
Vona að þið bloggarar séuð ekki að detta í neitt óskemmtilegt.
Lifið heil.

Tuesday, March 13, 2007

Moggablogg

Mér datt í hug að skella mér á Moggabloggið til að ræða þar alvarlegri mál og sýna kannski á mér aðra hlið en paródíu útgáfuna af mér. :)
Slóðin mín er þessi:http://ruthasdisar.blog.is/blog/ruthasdisar/
En ég vara ykkur samt við að það gæti verið einhver vandræði að kommenta ef þið eruð ekki skráð inn sem notendur á moggabloggið. Ég hef allavega lent í vandræðum með það og veit satt best að segja ekki hvort það er klaufaskapur í mér, gallar í vefsíðunni eða Makkinn sem ég er að vinna á. Þori ekki að stafhæfa neitt, en kíkið endilega í heimsókn til mín og skoðið alvarlegri hliðina á mér. Hún er nefnilega mjög áhugaverð skal ég segja ykkur. Ég hef nefnilega svo margt að segja.
Eigiði góðan dag.

Friday, March 09, 2007

Patrick Dempsey



Jæja, datt í hug að deila þessu með ykkur, en hitti Patrick Dempsey í New York í fyrra. Gleymdi ég að segja ykkur frá því annars?
:)

Booooorrrrinnnngg

Mér leiðist alveg óskaplega í vinnunni núna vegna þess að það er hreinlega ekkert að gera!!
Viljið þið bjarga mér bloggarar góðir og segja mér eitthvað skemmtilegt, svona svo ég fari nú ekki að gráta....og reyni að hengja mig í símasnúrunni og kæfa mig í Makkanum (en það er gert með því að klemma hausinn á milli skjásins og lyklaborðsins á laptoppinum).....

Thursday, March 08, 2007

Hugvisindaþing

Hæ allir saman,
Um helgina, eða réttara sagt á laugardaginn verður haldið hugvísindaþing í aðalbyggingu Háskólans. Það er þétt dagskrá og ábyggilega eitthvað fyrir alla. Slóðin er: www.hugvis.is
Ég ætla alveg örugglega að mæta og langar að spyrja ykkur blogg- og brunsfélaga með meiru hvort þið viljið ekki koma og fá ykkur kaffi og með því og hlusta á skemmtilegt fræðiefni! :)
Látiið mig vita ef þið viljið koma og sendið mér póst eða hringið í mig.
Og svona fyrir þá sem eru svo frægir og ríkir að þeir eru í fríi á föstudögum, :) þá hefst þingið á morgun (9.mars) og ábyggilega margt fróðlegt og skemmtilegt á dagskránni þá líka.
Látið sjá ykkur og leyfið nú akademíunni að flæða um æðar ykkar, þó ekki sé nema eina vorhelgi á ári! :)

Monday, March 05, 2007

Textar og fleira skemmtilegt

Jæja, helgin búin og ég mætt aftur í vinnuna þar sem ég sit og bíð eftir verkefnum vikunnar. Helgin var mjög fín í sveitinni og í kringum litlu rúsínuna mína hann Patrek litla frænda.
Þó brugðum við Kokksi, minikokksi, yfirmútta og ég okkur í bæinn á laugardaginn var og skruppum í IKEA að versla smáræði, við fórum í Kringluna líka og komumst að því að Minikokksi er greinilega upprennandi Kringlubarn þar sem hann sat í kerrunni sinni og horfði hugfangin á allt sem fyrir augum bar.
Annars verð ég bara að deila með ykkur söngtextunum sem ultu upp úr Kokka á leiðinni heim í sveitina. En hún er víst einstaklega vel að sér í þýðingum á rokktextum. Hún vílar sér ekki við að snara hinum flóknustu ensku söngtextum yfir á móðurmálið góða.
Hér er smá sýnishorn af því sem Kokksi söng fyrir mig (og alla hina í bílnum) á leiðinni heim:

She´s got legs e. ZZ Top: Hún er með lappir! og kann sko að nota þær....hún er með lappir og kann að nota þær....

Living on a Prayer e. Bon Jovi: AAAA, lifandi á bænum...

Fade away e. Calling: Strokast út strokast út, strokast út aaaaa......

Sorry e. Blue (upprunalega sungið af Elton John): Þetta er svo leiðinleg, leiðinleg staða, og verður bara verri og verri.

You shook me all night long e. AC/DC: Þú tuskaðir mig til í alla nótt...

Og munið nú að syngja þetta hátt og snjallt. Þetta kemur kannski ekki alveg eins dramatískt út á íslenskunni....hmmm

Friday, March 02, 2007

Að latast i vinnunni

Hvað á maður að gera af sér þegar maður er svo duglegur í vinnunni að maður klárar allar þýðingar og textavinnu á morgni miðvikudags og hefur síðan ekkert meira að gera í vinnunni það sem eftir er vikunnar? Jú, maður fer og brásar á netinu, hugsar um heimspeki, sendir tölvupóst á alla sem maður er búin að trassa að hafa samband við upp á síðkastið, pantar tíma hjá þeim sem maður er búin að trassa að panta tíma hjá og fer síðan að hugsa hvort maður eigi nú ekki bara að skella sér í mastersnám fyrst maður er nú byrjaður á þessari skólagöngu sinni! Það halda svo allir að maður sé alveg svakalega busy og hafi alveg rosalega mikið að gera í tölvunni. Þetta er nefnilega svolítil list að láta líta út fyrir að maður hafi nóg að gera í vinnunni skal ég segja ykkur..
Annars fór ég í Bónus að versla í gær og svosem ekki í frásögum færandi nema að ég fann engan veginn fyrir þessari svokölluðu lækkun á matarverði. Það eina sem ég fann reyndar var súkkulaði á 59 krónur og að sjálfsögðu var því raðað pent í matarkörfuna. Hvað græðir maður á því að súkkulaðismákökur og gos lækkar í verði? Annað en stærri björgunarhring utan um mittið? Og nei, Grumpa, ég er ekki að tala um eðal súkkulaði frá Belgíu eða Sviss!! :) Þau teljast ekki með! Ha Ha!
Annars er bruns sunnudagur framundan og ég kemst því miður ekki í það teiti. Ég er að fara austur eftir vinnu í dag og ætla að mæta í afmælisveisluna hennar mini Móður Jarðar sem verður formlega haldin seinni partinn á sunnudaginn. En, þeir sem mæta, vona ég að njóti vel. Fór annars að sjá Little miss Sunshine i vikunni og fannst hún algjörlega frábær! Ekkert smá sæt mynd!
Eigið svo góða helgi og hagið ykkur vel!

Thursday, March 01, 2007

Patrekur litli frændi



Er maður ekki sætur?! Smá sýnishorn af krútti aldarinnar!!