Forskaren

Thursday, November 24, 2005

Ekki fréttir

Jæja, ekkert svosem að frétta. Nóg að gera í skólanum og nóg að gera í vinnunni. Ég hugsa að ég skrifi lokaritgerðina mína um raunveruleikaþætti og hvernig þeir tengjast harmleiknum og kómedíunni. Mér finnst þetta áhugavert og nú sannast akademískur áhugi minn á menningarlegu gildi raunveruleikaþátta....sko sko! Þetta er sko ekkert útaf því að mig langi til að sjá aðrar kerlingar sitja inni í bíl og grenja yfir einhverjum forljótum karli sem þeim er hvort sem er alveg sama um. Heldur er þetta virkilegur og vísindalegur áhugi. hvað er fólk að hugsa sem fer í svona og af hverju vill fólk horfa á þetta? En það fást kannski einhver svör við þessu í ritgerðinni minni góðu. Annars er ég búin að lenda ítrekað í dónalegu afgreiðslufólki núna um dagana. Ég veit ekki hvað veldur. Kannski er ég föst með grettu í andlitinu eða kannski er það bara útaf því að allir eiga slæma daga í nóvember. Sko, ég var í keflavík um daginn (OOOOOOJJJJJJJ), algjör slorbær, en ég þurfti nú samt að fara þangað og eftir rúnt í kringum öll White Trash hjólhýsin og dapurleg kofaskríbli (sem Keflvíkingar kalla hús nota bene), þá fann ég sýslumanns skrifstofuna. Þar ætlaði saklausi höfuðborgarbúinn að þinglýsa samningnum sínum. En nei, nei, litla stelpan sem sat bakvið borðið ætlaði nú aldeilis að vera sheriff og ætlaði að senda mig aftur í bæinn til að kaupa löggiltan skjalapappír til að ljósrita leigusamninginn á. ég hélt nú ekki og gretti mig framan í hana þangað til að hún viðurkenndi að þeir gera þetta nú alltaf fyrir fólk. Skjalapappírinn lá bara á borðinu fyrir framan hana. Svona dónalegheit eru til háborrinar skammar, en ekki nóg með það heldur fór ég með Tensai og Kokksa á TGI Fridays um daginn og haldiðið ekki að stelpan þar hafi verið orðin svo þreytt á hvað við átum mikið að þegar við ætluðum að panta okkur dessert, þá stóð hún hinu megin í salnum og kallaði yfir með borðtuskuna á lofti: ,,hvern anskotanum viljið þið eiginlega fá", ástæðan fyrir óþolinmæðinni í starfsfólkinu var að það var verið að setja upp jólatréð inni hjá þeim og þar sem starfsfólkið er aldrei eldra en 12 ára þarna inni, þá voru náttúrulega allir með stjörnur í augunum og vei þeim sem ætlaði sér að trufla krakkana við dansinn í kringum jólatréð. en við fengum desertena okkar í lokin og þá var puttafar í ostakökunni minni og svo var búið að skrifa DIE SUCKER í kaffið mitt....ég skil ekkert í þessum ungdómi í dag svei mér þá.....

Monday, November 21, 2005

Súkkulaði og testósterón!

Sko, hér á blogginu mínu á undan sá ég að það var orðin ansi lífleg umræða um súkkulaði og annan fögnuð. Og þarf ég bara að tjá mig aðeins um það núna. Sko, málið er þannig að kona verður að fá sitt súkkulaði, og sérstaklega kona eins og ég sem er chocaholic þá hef ég öll skilningsvitin virk þegar það kemur að því að þefa uppi súkkulaði. Það skiptir engu máli hvar Hammer reynir að fela súkkulaðið, við munum alltaf finna það....ha ha!
En jæja, núna ætlar forski enn einu sinni að leggja land undir fót og núna lét ég verða að því að kaupa mér flugmiða til Alabama og ætla ég að sitja í sveitinni um áramótin og gera....hm, væntanlega ekki neitt! :) Gott hjá mér. maður gerir hvort sem er aldrei neitt á gamlárskvöldi anyway þegar maður er orðin þetta gamall.
Ekki nennir maður lengur að hlaupa á eftir leigubílum á miðri nótt og til hvers? Til að hitta blindfulla (for)heimska ameríkana á pöbbunum sem halda að þeir séu flottastir og bestir útaf því að þeir voru í sérsveitinni í den eða útaf því að þeir eru slökkviliðsmenn í NYC! Ég held nú ekki. Þá sit ég nú frekar heima með kokksa og giska á hvað marga putta hún er með fyrir aftan bak. Jæja, best að fara að koma sér í skólann. það þýðir ekkert að sitja hér langt fram eftir öllu og blaðra um súkkulaði og karla.

Tuesday, November 15, 2005

Pulp Fiction og Kill Bill

Haldiði bara ekki að Forski hafi átt þessa skemmtilegu helgi í henni Reykjavík? Ég fór út að borða á Grillinu á föstudaginn, út á Hótel Holt á laugardagskvöldinu og á Ítalíu og Austur Indíafjelagið á sunnudaginn. Geri nú aðrir betur en það! Annars fór ég líka á Oliver á föstudagskvöldið og sá þar að sjálfsögðu Quinten Tarantino sjálfan. Hann var þar með fullt af fólki. Friðrik Þór var þarna og hann Balti sem lítur reyndar út eins og Robison Krúso...Ég hljóp upp að Quinten karlinum og sagði ,,How you Dooiing?" og þá sagði hann, ,,Who the hell is this? Shoot this punk"...eða eitthvað í þá áttina...en svona bara ykkur að segja þá þorði Forski svo ekkert að segja neitt við hann. Var bara á dansgólfinu við hliðina á honum og flissaði eins og skólastelpa.
Mér tókst meira að segja að fara í afmælisveislu í Vogunum á sunnudaginn. Og við gestirnir sem vorum samferða suður eftir vorum alveg sammála um það, að aldrei hefur það verið svona mikil fyrirhöfn að komast í eitt afmælisboð. Það þurfti að sjálfsögðu að stoppa í Smáralind og pakka gjöfunum, svo þurfti að fara út í blómabúð og kaupa blóm, svo þurfti að heilsa öllum aðdáendunum hennar Tensai San sem eltu hana útum allt æpandi og skrækjandi. En ekki nóg með það, heldur það þurfti að fara niður í bæ og ná í einn gestinn sem vildi endilega pakka öllu inn í bílnum. Svo voru auk þess tvær kökur aftur í bílnum sem enduðu næstum því líf sitt í aftursætinu. Og svo villtist Kokksi að lokum í stórborginni og bölvaði og ragnaði allan tíman. Kokksi kvartaði sáran yfir Kapítalismanum og vegagerðinni, fólksfjölda og ökumönnum sem keyrðu of hægt. Ég er alveg viss um að hún gretti sig framan í alla vega tvö hjón á eftirlauna aldri og æpti síðan útum gluggan: ,,Fariði af veginum þarna pönkararnir ykkar!!!" Eitthvað í þá áttina. En jæja, það er best að ég fari aftur fram að lesa fyrir hópverkefnið í feminískum bókmenntarannsóknum.
Lifið heil.

Thursday, November 10, 2005

Trash Culture og fleira

Ég er að lesa mjög áhugaverða bók núna. En hún er um Ameríska sjónvarpsþætti og kvikmyndir og hvernig sömu minni og jafnvel sömu sögur koma fyrir í þessum verkum og í gömlu klassísku bókmenntunum. Þetta er mjög áhugavert og mig langar að skrifa ritgerðina mína í þessum dúr. Núna er eins gott að ég fari að sitja dag og nótt og hugsa um hvað ég ætli mér að skrifa, því að Forski er búin að ákveða að eiga sér ekkert líf á næstu önn og skrifa BAið fyrir næsta sumar. Mín kenning er sú að við sem lesendur og viðtakendur erum sífellt að reyna að nálgast raunveruleikann á einhvern hátt í gegnum þessa miðla. En við getum það aldrei því að við erum alltaf föst í táknmyndinni. Við getum aldrei komist að táknmiðinu í gegnum táknmyndina. Og þeim mun meira sem við reynum að brjótast út úr þessum höftum, þeim mun "heimskari" og "fáránlegri" verða þættirnir og sjónvarpsefnið. En þá er ég að tala um raunveruleika þættina. Við getum líka farið algjörlega í hina áttina og farið út í öfga fantasíu, bara af því að við getum það. Þá reynum við jafnvel að búa til heilan heim innan táknmyndarinnar, en þá er hætta á að verkið verði of einradda og þó að það sé auðvtiað ekkert að því, þá getur það minnt okkur á Kviður Hómers til dæmis.
Ég var í tíma í gær og skemmti mér ekkert smá vel því að við vorum einmitt að fara í póststrúktúralismann og það hvernig við erum alltaf föst í tungumálinu. Við komumst aldrei úr því. Og þegar þið lesið þetta, þá búið þið til textann og höfundinn. Bloggið mitt er til dæmis ekki til nema útaf því að þið lesið textann sem ég skrifa. Er þetta ekki brilliant?
Jæja, þarf að fara í tíma í feminískum bókmenntarannsóknum.
Lifið heil

Tuesday, November 08, 2005

Trópismi

Jæja, núna er Forski búin með líffræðiverkefnið í feminískum bókmenntarannsóknum og er núna að fara að snúa sér að því næsta. En það er um marxíska greiningu á svarthvítri ljósmynd. Það ætti nú ekki að vera svo mikið vandamál vona ég.
Annars er svosem ekkert að frétta. Nema ég fékk morðhótun frá Batman sem segir að ef ég láti ekki Súperman í friði í framtíðinni, þá sendi hann Spiderman á eftir mér. En eins og allir vita, þá þolir Forski ekki köngulær. Það sást líka til hans Zorglúbbs greyið á ER í gær en þar var hann að reyna láta meika yfir töskufarið á andlitinu á sér. Zorglúbb er víst að íhuga að fá nálgunarbann á Forska fyrir vikið. Ég skil nú bara ekkert í þessu. Ég frétti líka að Grumpa er farin að stalka hann Gísla Martein og sitji nú inni í runna fyrir utan húsið hans og skrásetur hverja hreyfingu. Ég held að Gísli karlinn sé líka að íhuga að fá nálgunarbann.
Móðir Jörð er víst rúmliggjandi eftir gleði helgarinnar og segist ekki vilja koma framúr aftur því að heimurinn er svo grimmur og ægilegur staður. Hún bara trúir ekki ofbeldinu sem hún varð vitni af. Hver er svona grimmur að berja einhvern með handtösku. Nei, nú er sko nóg komið sagði Móðir Jörð rétt áður en það leið yfir hana af hneykslun. Tensai sat víst bara hjá allan tímann og var hin rólegasta á meðan blóðugt ofbeldið gekk yfir og brosti ofan í glundrið sitt. Þvílíkt anarkí og glunduroði, ég segi nú bara ekki annað!! Svei mér þá.

Monday, November 07, 2005

Súperman og Zorglúgg

Það var nú meiri ævintýrið sem Forski lenti í um helgina!! Haldiði ekki að hún hafi hitt hann Clark Kent og fallið svona í stafi af hrifningu. Ég prófaði til dæmis að henda mér í fangið á honum og þóttist hafa fallið í ómegin til að athuga hvort hann mundi nú ekki henda af sér spjörunum og í ljós myndi koma Súperman sjálfur. En ekkert þvílíkt gerðist, heldur lenti aumingja saklausi Forski í slagsmálum við hann Zorglúgg og þurfti ég að verja mig með öllum tiltækum ráðum, eins og með handtösku og regnhlíf. Forski náði yfirhöndinni í slagsmálunum í sömu mund og hún hélt ræðu um kennara og sex ára bekk (don´t ask!!). En þetta endaði allt saman í því að Súperman hljóp öskrandi í burtu og langaði ekkert að bjarga Forska, enda endaði hún eins og róni niðri á Grandrokk þangað til Madame liquer kom henni til bjargar og dröslaði henni heim rétt eftir miðnætti. Já, þannig fór nú sjóferð sú. Ég held svei mér þá að þetta hafi verið mitt fyrsta og seinasta Halloween partý. Mér þótti þetta nú eitthvað duló allt saman. Og ég sem drakk ekki nema hálfa rauðvín....
Annars er það að frétta að Forski situr sveittur yfir verkefni í feminískum bókmenntarannsóknum sem fjalla um trópisma og myndmál smæðarinnar. Þar er talað mikið um nagdýr og jafnvel amöbur. Þetta er eiginlega komið út í hálfgerða náttúrufræði hérna, en það er svona, með þessar aumingjans konur, sem er haldið niðri í svaðinu og ofan í eldhúsvaskinum alla daga. Ég er alveg að klára þetta verkefni og það verður framhald í næsta bloggi.

Thursday, November 03, 2005

Félagssöguleg greining og Marxísmi

Sko, ég sá leiðinlegustu mynd í heimi í gær. En þar sem ég er nú professional akademíkir, þá lét ég mig hafa leiðindin enda er Forski búin að þjálfa ansi hátt þol fyrir boringisma. En það voru samt margir sem gáfust upp og hlupu grátandi út. en þetta er nú svolítið mikið af því góða. Myndin heitir Dauðinn í Feneyjum, en hún ætti í rauninni bara að heita DAUÐI og LEIÐINDI. Ég er miður mín því að í myndinni er ein uppáhalds borgin mín troðin alveg niður í svaðið og eftir að maður sér hana, þá langar manni ekkert að fara þangað. Visconti má skammast sín fyrir þessa svívirðu. Ekki að eins og allt sem er svo boring að það fær mig stundum til að tárfella, þá er því miður ekki annað hægt að segja en að myndin var góð í því að skapa ömurlegheit.
en við skulum nú ekki missa okkur algjörlega ofan í ismann hérna. Ætli ég láti ekki verða að því að fara í spariskóna og skunda til Grumpu á laugardagskvöldið með eina litla rauðvín undir hendinni. Annars er nú líka Guy Hawks day þ. 5 eða 6. nóvember og mér finnst við alveg geta haft smá brennu í stofunni hjá Grumpu. Við getum líka náð okkur í litla brúðu (sem nota bene getur litið út eins og spænsk-amerískur hermaður) og ég get séð um að brenna karl á báli ásamt söng og gleði viðstaddra....Eða ég ætti kannski bara frekar að borða meira af Ben´s and Jerry´s heima við sjónvarpið. Ekki vil ég nú verða úthrópuð sem feministi dauðans. ég get kannski búið til skemmtilega mynd sem heitir: Dauðinn í Feministanum....