Forskaren

Thursday, June 29, 2006

Sumarleyfi

Á sumrin, þá sofnar Reykjavík. Með einni undartekningu og það er miðbærinn, enda er miðbærinn eini staðurinn sem maður á að vera á á sumrin. Það er engin í vinnunni og allir eru af einhverjum ástæðum latir og sljóir. Það getur nú ekki verið hitanum og góðviðrinu að kenna, þar sem íslensk sumur eru fræg fyrir allt annað en sól og hita. En ef maður þarf að ná í lækninn sinn, þá er hann í sumarfríi og kemur kannski í ágúst. Þjónustufulltrúinn í bankanum fór líka í sumarfrí og kemur aftur í september (það er nú meira hvað þjónustufulltrúar virðast eiga mikið af peningum þessa dagana)og svona má lengi telja. Það endar með því að maður er í hálfgerðu sumarfríi sjálfur með hausinn. Hugsar ekki neitt nema um það hvað maður á að hafa í hádeginu og hvernig verðið skyldi verða á morgun osv. eða maður kemur í vinnuna á morgnanna og byrjar á því að setjast niður og blogga....hm, ég ætti kannski að snúa mér að dagsstörfunum....

Tuesday, June 27, 2006

HM

Hef ekkert horft á HM þennan tíma sem heimsmeistarmótið hefur staðið yfir. Veit ekki einu sinni hver Nesta er, en samkvæmt Grumpu er það föngulegur landsliðsmaður hjá Ítölum. Alveg frá því ég var krakki þá hef ég fylgst með HM í fótbolta. Alltaf valið mér eitthvert lið til að halda með og valið mér nokkra uppáhaldsmenn til að hvetja áfram. En skrítið, mig langar ekki einu sinni til að finna út hvernig Nesta lítur út eða velja mér lið til að halda með...Ég veit ekki hvað hefur gerst. Kannski datt þetta út úr hausnum á mér í bókmenntfræðinni. Eða kannski er ég bara komin á breytingarskeiðið og íturfagrir karlmenn í stuttbuxum vekja ekki einu sinni áhuga minn... Kannski

Wednesday, June 21, 2006

B.A. og fleiri vangaveltur

Jæja, núna er Forski semsagt komin á fullt með að vinna í B.A. ritgerðinni og viti menn, haldiði ekki að hún fjalli um orðræðugreiningu á bók sem heitir Jarhead, en hún er um hermann sem fer í Persaflóastríðið. Þetta verkefni var svona agalega girnilegt því að það er svo mikið hægt að rýna ofan í menningu okkar Vesturlandabúa í leiðinni. Mjög áhugavert verkefni og kannski fæ ég einvher svör við því af hverju hermenn ljúga svona mikið, eru svona miklir lúserar og hafa einstakt lag á að láta allt og all hata sig....hmmm, læt ykkur vita niðurstöðurnar fljótt.
Annars er ég búin að koma mér voðalega vel fyrir í Reykjavíkinni aftur og búin að vinna sleitulaust að því að gera herbergið mitt voðalega fínt. Sat uppi í rúminu mínu í gær og horfði á sjónvarpið (sem er beint fyrir framan rúmið nota bene) en þar var ég í fyrsta sinn að sjá smá af einhverjum fáránlegum raunveruleikaþætti um konur sem eru að skipuleggja brúðkaupið sitt. Hvað er eiginlega að verða um okkur??? Hvernig dettur íslensku sjónvarpi í hug að bjóða íslenskum konum upp á þetta drasl? ER ætlunin að forheimska kvenþjóðina eins og gert var í Ameríku? Við erum ekki svona eins og þessar heimsku ljóskur þarna úti (það eru að sjálfsögðu undantekningar, eins og allir vita...) en þetta er bara orðið tú möts!! Og hananú! Annars hef ég ákveðið að lýsa eftir Grumpu. Mig er farið að gruna að hún hafi tekið gríninu um kúkableyjurnar ansi alvarlega og sé í alvörunni að hugsa um að gerast vampíra í Transilvaníu....Látið mig vita ef eitthvað fréttist, en seinast sást hún á kaffi parís kát og glöð með kaffi og eplatertu.

Tuesday, June 20, 2006

Hrein leiðindi

Mér leiðist svo mikið í vinnunni núna að ég er við það að detta ofan á lyklaborðið og falla í djúpan kyrrlátan svefn sem erfitt verður að vekja mig úr.
Segiði mér brandara, áður en ég fer niður á lager og hendi mér fyrir lyftara....

Monday, June 19, 2006

Meira um litla frænda....

Hann er svo mikið krútt hann litli frændi og hann hefur alveg fullt af kellingum alltaf á eftir sér sem bíða eftir því að verða við öllum hans óskum. Þetta var að verða einsog í suðuramerískri skáldsögu á tímabili, þar sem móðirin gekk með barnið í fanginu og á eftir mæðgunum komu þrjár móðursjúkar kellingar, ein með flísteppi, ein með hitamæli og sú síðasta með bleyju og vatnsglas. Núna er Forski semsagt alveg komin inn í kúka-og ælusögur og hef ég hugsað mér að létta Grumpu lundina á göngutúrum okkar á næstunni með alls kyns skemmtisögum af frænda litla. En best að vera ekkert að hafa alltof hátt um það, því að hún gæti fengið skyndilega í magann eða fengið einhverja aðra dularfulla pest ef hún hefur grun um það sem er í vændum.
Annars var brunchinnn okkar frekar tíðindalaus í gærmorgun nema uppi eru vangaveltur um hvaða stað á að velja í staðin fyrir Kaffi París og hvert eigi eiginlega að fara á næsta ári, en uppi eru hugmyndir um kellingaferð mikla til Evrópu á næsta ári.
Jæja, best að halda áfram að vinna. Eigiði góðan dag og komiði endilega með tillögur fyrir skemmtilegri borg og góðum brunchstað.

Thursday, June 15, 2006

Litli frændi og fleira

Núna er hann litli frændi kominn í heiminn og er aljgört krútt!! Hann lét hafa mikið fyrir sér og aumingja kokksi endaði í Reykjavík og í keisaraskurði. Þannig að frændi litli er voðalega sléttur og fínn og ánægður með lífið. Hann sýgur núna allt sem fyrir er eins og putta, brjóst, tunguna og loftið og svo er hann komin í pínulítil föt....hann er bara algjör dúlla!! Ég er meira að segja svo yfir mig hrifin að ég er sko alveg til í að heyra fæðingarsöguna hjá Kokksa aftur og aftur!! En svona svo það sé alveg á hreinu, þá kom stráksi í heiminn þ. 13. júní. :)
Annars er nú svolítið fyndið að frétta. Munið þið eftir því þegar Forski hljóp á ströndinni í fyrra með skrýtnum spænskum hermanni sem reyndist svo vera að ljúga um faðerni, kynferði, uppruna, nafn, aldur, skóstærð, augnlit og fatastærð? Það fór nú svosem ekkert fyrir þessu ævintýri eins og þið munið en Forski varð ekkert alltof glöð þegar hún komst að öllum sannleikanum. En núna er víst enn einn brandarinn búin að bætast við lygina sem kemur upp úr manninum. En hann þóttist hafa hætt í Eimskip þar sem hann vann við að skúra gólf og setja bréf í tætarann fyrir aðra, og fara í fína skrifstofustöðu í Amaeríku fyrir jólin. Hann sór og sárt við lagði að hann væri ekki að fara aftur til Trailertrash town til konunnar sinnar (sem var víst búin að grátbiðja hann á hnjánum að koma til sín aftur). En viti menn. Var hann ekki bara enn í Eimskip að fela sig litla greyið. Heima hjá kellu að drekka ákavíti í volgt kók á kvöldin....Svona getur þetta verið, en Forski hleypur núna bara ein á ströndinni og er sko miklu ánægðari með það!!!! Good ridance!!

Thursday, June 08, 2006

Stjórnarkreppa

Jæja, þá er allt komið í bál og brand í ríkisstjórninni og engin veit hver stýrir landinu þessa dagana. Halldór er hættur, Guðni er hættur við að hætta og Finnur ekki byrjaður....Mér virðist sem algjör upplausn ríkir í ríkistjórninni eins og er og það er ekki laust við að maður flissi örlítið með Samfylkingunni að óförum þessara manna (sumra allavega). Ég veit ekki hvort þið sáuð það en undur og stórmerki gerðist á blaðamannafundinum með Halldóri þegar hann sagði af sér. En hann sást brosa!! Og það oftar en einu sinni! Ætli þetta verði sett í öldina okkar?
annars er svo sem ekkert að frétta og því miður og ver. Það bólar ekkert á litla frænda sem ætlar sér að setjast að í Kokksa og er ekkert á leiðinni út. Enda líður honum örugglega bara alveg ágætlega þarna inni. Fær næringu í æð, góðan svefn, þarf ekkert að hafa fyrir lífinu... En honum verður víst ýtt út greyinu á sunnudagskvöldið ef ekkert gerist fyrir það.
Jú annars er það nú að frétta af Forska að ég er nú í óðaönn að laga til herbergiskytruna góðu í RVK og búin að mála baðherbergið, gluggana og lista og svona fleira. Þannig að ekki líður á löngu þar til Forski verður aftur komin í bæinn. Hlakkar til, en líka ekki. það er svo rosalega ljúft að vera í sveitinni.
Lifið heil!

Sunday, June 04, 2006

Brunch

Komin úr Brunch sem var barasta fínn þennan morguninn. Við vorum reyndar bara þrjár í morgun en ekkert verra fyrir það. Tensai San var hins vegar ekki sátt við morgunmatinn sinn en hún keypti sér Brunch special og eggin voru fúl og kjúklingurinn í kjúklingabökunni var harður....hún er ekki enn búin að jafna sig held ég... Annars vorum við að ræða kellingarferðina góðu sem fara á í á næsta ári, Og okkur sýnist valið vera á milli Rómar og Prag núna. Sumum langar til Rómar og sumum langar til Prag. Þetta endar kannski bara með atkvæðagreiðslu svei mér þá. Annars er beðið með óþreyju eftir erfingjanum hennar Kokksa en eins og allir bloggarar vita að þá fór Kokksii og setti eina í ofninn í haust og er að uppskera hinn fínasta prins í staðin. Hún sefur bara og sefur og starir á bumbuna daglangt og bíður eftir að eitthvað gerist. En það verður tilkynnt hátíðlega um leið og erfinginn er komin í heiminn.
Annars er Forski núna farin að mála og ditta að í nýju heimkynnunum og ætlar að koma sér vel fyrir niðri í kjallara hjá Tensai San næsta árið eða svo. Er maður þá ekki orðin ekta piparjónka í Vesturbænum og í kjallara í þokkabót? Annars held ég að single life hafi aldrei verið ljúfara. Hvað er betra stelpur en að vera frjáls eins og fuglinn og geta gert allt og þá meina ég allt sem manni lystir og langar til. Yndislegt líf!!!

Thursday, June 01, 2006

Ekkert um að vera

Svosem ekkert um að vera. Sit í kaffi og hef eiginlega ekki sagt orð í allan dag.
Orðin hálf einhverf á þessu öllu saman og hef svosem ekkert að segja. Ég varð jú 34....nei fyrirgefður, 25 ára í gær (í níunda sinn) og dagurinn var bara mjög fínn. Fór á bíó með Tensai San og sá Da Vinci Code. Mjög fín mynd til afþreyingar og skemmtilegt hvernig þeir settu hana upp. Mér fannst eiginlega kvikmyndin koma sögunni sjálfri miklu betur frá sér heldur en þessi Dan Brown sem skrifaði söguna. Við skulum bara segja að hann fær seint nóbelsverðlaunin í bókmenntafræði...
Annars skil ég svosem alveg að sumt í myndinni geti sýnst hlægilegt í augum akademískra manna. En myndin var skemmtileg engu að síður og ég mæli hiklaust með henni.